Þriðjudagur, 04. janúar 2005
Ferlega er maður þungur í gang eftir jóla- og áramótatrippið. Fyrsti vinnudagur nýs árs er jafnan einnig versti dagur ársins aðallega vegna þess að hann fer allur í að segja "gleðilegt ár og takk fyrir gamla" við alls konar lið sem manni gæti ekki staðið meir á sama um hvort það lifir eða deyr.
Skammstöfunin MOGA varð því að viðkvæði gærdagsins hjá mér: Move On Go Away.
Þetta var samt skárra en á bensínstöðinni í gamla daga þegar maður þurfti að óska skítapakki sem mann langaði virkilega til að drepa gleðilegs árs þúsund sinnum. Sumum oft á dag.
Anyhu. Ég sór þess dýran eið í 100.000 eintökum í dag að ég myndi hætta að reykja fimmtudaginn 6. janúar. Þessi orð munu standa þó ég muni sakna rettunnar. Annars er ekkert mál að hætta og ég hef oft gert það en féll jafnan á fylliríum. Sá áhættuþáttur hefur verið fjarlægður þannig að þetta verður walk in the park. Fimmtudagurinn varð fyrir valinu þar sem hann er edrúdagurinn en þann 6. júlí 2003 tékkaði ég mig inn á Teig, eins og frægt er orðið.
| 14:53 |