Þriðjudagur, 25. janúar 2005
Landsöfnunin gengur það vel að ég sé fram á að greiða lénsskattinn á morgun þar sem ég treysti mér til að bæta þeim aurum við sem enn vantar upp á 7000 kallinn.
Gott fólk hefur verið að gauka að mér allt frá 1000 krónum og niður úr en vinsælasta framlagið er "ca. 1 bjórverð. :-)" eins og einn öðlingurinn orðar það. Fyrirfram hafði ég reiknað með myndarlegm styrkjum frá Framsóknarflokknum og dómsmálaráðuneytinu en hef ekki fengið krónu úr þeim áttum og það eru fyrst og fremst eðalnetverjar og bloggarar sem láta til sín taka.
Ég ætla samt þeirra vegna að halda nöfnum þeirra leyndum. Pepp frá nafngreindum aðilum á kommentunum, sérstaklega svörnum andstæðingum, er svo vitaskuld gulls ígildi. Einhverjir hafa bent mér á að skipta um lén og fara yfir í eitthvað ókeypis dæmi. Ég treysti hins vegar engu á netinu sem kostar ekki neitt óg persónuleg kynni mín af ISNIC fólki hafa fyrir löngu sannfært mig un að maður er best geymdur þar. Það er ekki þeim að kenna að ég geti ekki pungað þessu smotteríi út en eins og maður sem ég þekki sagði einhvern tíma þá er fim kall mikill peningur ef maður á hann ekki til.
| 20:39 |