Miðvikudagur, 26. janúar 2005
... þetta sagði Bullseye um Elektru í Daredevil #181 frá apríl 1982. Á forsíðunni stóð:
BULLSEYE VS. ELEKTRA
ONE WINS. ONE DIES.
Og svo rak Bullseye Elektru í gegn með SAI-inu hennar. Morðkvendið glæsilega skreið síðan heim til Matts Murdock og dó í örmum þessa fyrrum kærasta síns.
Falleg og átakanleg saga og það er á hreinu að Elektra, eins og Frank Miller, skrifaði hana, er flottasta comix persóna ever. Kynntist henni fyrst í íslensku Hulk blöðunum þegar snillingurinn Sigurjón í Siglufjarðarprentsmiðjunni lét Frank Miller´s Daredevil fylgja sem aukasögu. Við höfum verið óaðskiljanleg síðan.
Jennifer Garner var fengin til að leika Elektru í vondri mynd um Daredevil. Elektra var það besta við þá mynd sem er argasta móðgun við DD Millers með erkibjánanum Ben Affleck í hlutverki þess óttalausa. Ég gat ekki sætt mig við Garner sem Elektru þá og mun ekki gera það en hún var samt það besta við þessa skelfilegu mynd. Það getur auðvitað bara ein kona af holdi og blóði leikið Elektru og það er Angelina Jolie. Hún er líka sú eina sem gat leikið Löru Croft og sennilega er hún yfirleitt eina konan sem getur leikið uppdiktaðar drottningar blautra drauma nörda allra landa.
Anyhu. Garner er komin aftur í sinni eigin mynd, Elektra, sem er spin off frá Daredevil. Eina mögulega spin offið auðvitað af því Affleck gerði út af við DD. Elektra dó auðvitað líka í myndinni eins og bókinni en nú er hún upprisinn og meira að segja í rauðu áttfitti eins og í teiknimyndablöðunum. Ég er að fíla það þó það hafi auðvitað ekkert verið að svarta leðrinu í vondu Affleck myndinni.
Empire gefur Elektru því miður slæma dóma. 2 stjörnur af 5 og segir myndina ekki vera jafn slæma og Catwoman (sem er auðvitað ekki hægt) en ekki jafn góða og Daredevil sem þeir hjá Empire benda þó á að segi í sjálfu sér ekki neitt. Ég á samt bágt með að trúa því að myndin geti verið verri en Daredevil þar sem það eitt að losna við Affleck og Michael Clarke Duncan að fíflast sem Kingpin getur ekki verið annað en til stórbóta. þannig að það verður því ekki komist hjá því að kíkja á gelluna.
| 22:13 |