Your nose is broken. Your jaw's next
Þriðjudagur, 04. janúar 2005

SIN CITY SHRINKS IN THE REARVIEW MIRROR, AS CRANKY AND WEARY AS A TIRED WHORE WAITING FOR DAWN AND SOLITUDE
Sin City trailerinn tekur af öll tvímæli um að Rodriguez er búinn að setja saman magnaða ræmu. Þetta er svo klikkað að maður höndlar þetta varla. Ég er búinn að bíða eftir kombakki hjá Mickey Rourke lengur en ég kæri mig um að muna og það þarf eitthvað mikið að klikka ef Sin City hjálpar honum ekki að rétt úr kútnum.
What if I've imagined all this? What if I've finally turned into what they've always said I would turn into? A maniac. A psycho killer.
Rourke er Marv enda fer það honum lang best að leika utangarðsmenn enda maðurinn sjálfur a loner, an outsider, a fighter eins og hann kynnti sig til sögunnar í glæuverkefninu Homeboy.
Pétur í Nexus sagði mér um daginn að eftir að treilerinn var gerður opinber hafi Sin City nöttararnir hópast niður í Nexus til þess eins að tala um treilerinn. Það gefur lífinu gildi að vera comix nörd.
Sin City verður frumsýnd hérna 22. apríl og ég er ekki frá því að eftirvæntingin sé orðin meiri en eftir Episode III enda Lucas búinn að bregðast í tvígang þannig að maður reiknar ákveðin vonbrigði inn í gengið á lokakafla Star Wars.
Pétur segir að eftir Sin City treilerinn sætti maður sig ekki við neina miðlungsmynd. Krafan er einfaldlega að myndin verði frábær. Ekkert Daredevil og Punisher bull hér.
Sin City plaggötin
Eldri Sin City færslur:
Sögur úr borg syndanna
Drög að upprisu
Päivää Badabing!
Innihaldslaust hjal
Guli bastarðurinn og annað pakk
| 12:27 |