Mánudagur, 21. febrúar 2005
Þessi færsla átti að vera helguð harðorðu Og vodafone dissi en þá datt skyndilega nettengingin inn á nýja staðnum þannig að það fellur um sjálft sig. Samt fúlt að skipta við frjálst fyrirtæki á fjarskiptamarkaði af prinsippástæðum til að sýna andúð á 70 ára einokun Símans þegar maður veit að gamla ríkismonsterið veitir betri þjónustu.
Hvað um það. Ég er búinn að rífast svo mikið um reykingabann á veitingastöðum í dag, bæði í samræðum og tölvupóstum, og hefur ekki liðið jafn vel lengi. Það er fátt skemmtilegra en að verja vondan málstað en þó er full djúpt í árinni tekið að segja að ég hafi "rifist" þar sem mér er tæknilega alveg sama um þetta mál, eins og öll önnur.
Vísisgreinin um helgina fékk einhverja til að fara á límingunum og það er gott. Annars er þetta nauðaómerkileg grein og til dæmis miklu meira spunnið í langt svar félaga Jakobs.
Anyhu. Niðurstaða mín af nöldri dagsins er sú að þeir sem vilja banna reykingar á skemmtistöðum eru að misskilja eðli djammsins. Þetta lið er svolítið eins og fólk sem fer í sund og tuðar svo yfir því að hafa blotnað. Áfengisneysla, reykingar, slagsmál, áhættukynlíf og skyndikynni eru samhangandi í djamminu og þeir sem höndla það ekki eru varla mikið fyrir tjúttið innst inni og ættu bara að halda sig heima. Allir sem reynt hafa vita að reyklaus partí eru hundleiðinleg (enda reykleysingjar upp til hópa hundleiðinlegir) og mesta stuðið er þá úti á svölum eða þar sem reykingafólkið kemur saman. Það er hættulegt að djamma og áfengið er miklu hættulegra en tóbakið en samt dettur engum til hugar að banna áfengisneyslu á skemmtistöðum? Lágmarks collateral damage af djammkvöldi er reykur í lungum, þynnka, reykjarfýla af fatnaði, klamydía, flatlús eða önnur óáran. Í verstu tilfellum er fólk barið í spað og það deyr. Enginn hefur þó enn verið myrtur af fólki í tóbaksæði.
Reykingar eru óþverri en á meðan ríkið flytur þetta djönk inn og heimilar sölu þess er út í hött að banna neyslu þess. Framsóknarkerlingar (af báðum kynjum auðvitað) allra landa ættu þá bara að sameinast um að banna þetta alfarið. Það væri hreinlegra.
| 16:18 |