»  off record  »  No Signal
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
No Signal
Mánudagur, 28. febrúar 2005

... er það eina sem ég hef fengið af viti út úr Digital Island afruglaranum mínum þannig beina útsendingin frá Óskarnum féll niður í nótt. Það grætur það að vísu enginn nema ef til vill minn gamli netböddí Alan Hudson.
Sjálfur var ég hálf feginn að geta farið snemma að sofa enda vissi ég fyrirfram hvernig þetta færi en eins og ég lýsti yfir á Talstöðinni á laugardaginn þá tók Eastwood bestu myndina, besta leikstjóran, Freeman besta aukakarlinn og Swank bestu leikkonuna.

Ég ætlaði líka að veðja á Eastwood í besta leikkarlinum en eftir smá rökræðu við Hulla og Frey Gígju þá bakkaði ég og gaf Foxx eftir styttuna fyrir Ray (það er svo stutt síðan það var "niggernight" á Óskarnum þegar Berry, Washington og Poiter voru öll verðlaunuð þannig að ég átti ekki von á að svarti maðurinn kæmist að fyrr en eftir a.m.k. 10 ár).
Ég naut hvíldarinnar samt ekki lengi og þegar ég vaknaði í morgun og hlustaði á fréttirnar af þessu heltist yfir mig tómleikinn - auðvitað á maður alltaf að horfa á Óskarinn. Þetta gerist ekki aftur og opinbera skýringin mín er sú að ég hafi sniðgengið þetta til að mótmæla meðferðinni á Scorsese , Hitchcock, indíánum og svertingjum. Þá hjó ég líka eftir því að Akademían sniðgekk Dolph Lundgren eina ferðina enn. Hvað er að?

Helgin fór ananrs í að dílíta rétt tæplega þúsund spömmum úr kommentunum. Þau voru öll auglýsing á penis enlargement pills þannig að ég hlýt að taka þetta til mín og fara að gera eitthvað í þessu. Undarlegast var samt að þessi málsháttur var inni í öllum kæfunum:

"Never argue with an idiot. They drag you down to their level then beat you with experience."

Það má alveg verja það að ég sé ídjót en að senda mér þetta í 1000 eintökum er overkill. Forwarda þessu því beint á Málefnin.com þar sem heimskan og fáviskan grasserar sem aldrei fyrr.


| 13:31 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff