»  off record  »  Sjort kötts
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Sjort kötts
Mánudagur, 14. febrúar 2005

Það hefur verið brjálað að gera hjá Fjölmiðlaparinu Þóru (25) og Tóta (33) sem hefur staðið í flutningum og íbúðarendurbótum án þess að hvorki Vala Matt Séð&Heyrt hafi gefið því gaum. Trúi því ekki sem Björn Þór segir mér að öll þessi frægðarfólks wannabe hringi sjálf í þessa miðla til að plögga daglegu amstri sínu. DV er auðvitað alltaf með puttana á púlsinum og upplýsti um helgina að ég og Þóra séum að hefja "eiginlega sambúð". Samkvæmt því er óeiginlegri sambúð okkar lokið en ég veit að vísu ekki hvað óeiginleg sambúð er, kannski fjarbúð. Who knows?

Er ekki búinn að plögga internetinu inn í íbúðina og má ekkert vera að þessu þannig að raunasaga mín af því hvernig það er að vera umburðarlyndi kærastinn ásamt árekstrum við ritstjóra Mannlífs bíða betri tíma.

Það vill svo skemmtilega til að þessi ritstjóri, einnig þekktur sem Maðurinn með hattinn var sidekick hjá Eiríki Jónssyni í laugardagsmorgunþættinum á nýju Talstöðinni. Það er óhætt að segja að EIR hafi gert massa kombakk en hann fór alveg á kostum með Reyni sem "svertingjann með gítarinn" sbr. Jay Leno.
EIR er vel geymdur í útvarpi og fallegustu sonum Framsóknarflokksins (mér og Stjána) var vorkunn að þurfa að taka við af honum. Stóðum okkur samt alls ekki illa í útvarpinu en það er langt í að við náum sama status og EIR og getum gert hvað sem er. Eiríkur sagði mér í fyrra að ég ætti enn 20 ár eftir í skítnum áður en ég get sett mig í prímadonnustellingarnar.

Begga frænka vann verðskuldað blaðamannaverðlaunin fyrri bestu umfjöllun ársins 2004. Ég er hress með það en mun ekki tjá mig um aðrar niðurstöður þessarar samkomu þar sem lúðalegsta stétt landsins spókaði sig í helgardjammfötunum teljandi sig vera á "gala balli". Galið.

Morgunblaðið var einu sinni blað með respect. Á sunnudaginn spanderaði það heilsíðu á blaðsíðu 17 í auglýsingu um að það væri "Mest keypta dagblað landsins". Datt einhverjum í hug að DV seldist í stærra upplagi en Mogginn? (Það kemur auðvitað að því með þessu áframhaldi). Ég vinn sem sagt á minnst keypta dagblaði landsins en það er líka það mest lesna. Andlát Moggans færist nær.

Bakþankar Jóns Gnarr í Fréttablaðinu á fimmtudaginn eru álíka tímaskekkja og þessi Moggaauglýsing. Jón hangir í boðorðunum og einhverju andskotans afturhaldsrugli höfðu eftir Krosslafi himnadraugi og vill banna fólki að ríða nema það þekkist vel. Skyndikynni eru innihaldslaus tímasóun að hans sögn. Af tvennu illu er nú betra að brjóta eitt boðorð og sóa tímanum í kynlíf með ókunnugum en til dæmis að horfa heiladauður á Skjá einn. Kynlíf er líka alltaf challenge og ekkert innantómt við það og þó það verði alltaf betra eftir því sem maður kynnist rekkjunautnum betur er galið að fordæma líkamleg kynni á frumstigi. Þetta er ótrúlegt bull og sorglegt að lesa þetta á 21. öldinni og það er skerí að tveir fyndnustu skemmtikraftar landsins (Jón og Gunnar í Krossinum) skuli reka svona stífan áróður gegn þessari heilbrigðu iðju. Það er ekki skrítið að Satan hafi unnið áróðursstríðið með því að gangast við mannlegum hvötum og lagt blessun sína yfir allt sem er skemmtilegt.

Allir út að gera kynlíf!


| 14:42 |
komment

Hahaha Þú nærð nýjum hæðum - þetta blogg ætti að vera skyldulesning í öllum framhaldsskólum.

Nr. 1 | Ingólfur | 14.02.2005 | 23:42:07 | [+] |

Er þetta ekki fullmikið tekið úr samhengi hvað það er sem Jón Gnarr skrifaði virkilega í bakþankana... Hver einasti maður með smá skilning og reynslu af lífinu skilur þessi skrif hans og ætti að taka þau til athugunar ...það sem HANN skrifar ætti að vera skyldulesning í öllum framhaldsskólum.

Nr. 2 | jájá | 7.09.2005 | 0:25:37 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff