»  off record  »  Sortorm
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Sortorm
Þriðjudagur, 15. febrúar 2005

adder.gifDV greindi frá því á dögunum að uppi væru hugmyndir um að gera fimmtu seríuna um Blackadder með Rowan Atkinson í hlutverki Nöðrunnar.
Þar sem eldri Blackadder þættir eru með því allra besta sem gert hefur verið fyrir sjónvarp fyllist maður að sjálfsögðu eftirvæntingu. Ég er samt ekkert að missa mig minnugur þess að fyrir nokkrum árum greindi DV frá því að til stæði að gera nýja Blackadder þætti þar sem Edmund yrði 13 lærisveinn Krists. Frábær hugmynd sem hefur ekki enn orðið að veruleika.

Nú mun meiningin vera að láta Blackadder dúkka upp á miðjum hippatímanum og að þessu sinni á hann að vera óskilgetinn sonur úr bresku konungsfjölskyldunni. Góð pæling og í fínu harmóní við hrakfarasögu Blackadderanna.
Blackadder seríuarnar fóru stigbatnandi frá því að Richard Curtis og Atkinson skrifuðu þá fyrstu. Ben Elton leysti Atkonson af í næstu þremur og saman topuðu hann og Curtis í Blackadder Goes Forth. Frábærri stríðsádeilu úr fyrri heimsstyrjöldinni. Þessir þættir eru ásamt Fawlty Towers, Bottom og Flying Circus besta sjánvarpsefni ever. Sledge Hammer er einnig í þessari kategóríu og er eini Kaninn. Það eru Bretar sem kunna þetta best.

Hail Edmund, Lord of Adders Black!

Reyndi að rífa umræðuna á Vísi.is upp úr pólitísku argaþrasi fyrir helgi með því að fjalla um eitthvað sem skiptir verulegu máli, nefnilea meðferð Hollywood á comix. Fékk litlar sem engar undirtektir og hef til dæmis vakið harðari tilfinningar með skrifum um Dolph Lundgren en einn af skólastrákunum sem runka sér yfir myndum sænska kjöthleifsins FDL (Félagar Dolph Lundgrens) er loksins búinn að svara dissinu og mun væntanlega taka málið fyrir á fundi. Sjálfur má ég ekki vera að því að pæla í þessu þar sem ég er að undirbúa ársfund Aðdáenda Ishtars og leggja drögin að endurkomu Mickey Rourke í kjölfar Sin City.

But anyhu... Lundgren gaurarnir eru hressir.


Smá Ljóðahorn:

So Flashheart tweaked the Adders beard,
From now he always shall be single.
To fall in love with boys is weird,
especially boys without a tingle.

Blackadder, Blackadder.
His taste is rather odd.
Blackadder, Blackadder,
The randy little sod.
Lord Flashheart, Lord Flashheart,
I wish you were the star.
Lord Flashheart, Lord Flashheart,
You're sexier by far.


| 16:39 |
komment

Hér með skal tekið fram að félagið heitir Félag Fylgjenda Dolph Lundgrens, þrátt fyrir nokkurn rugling af okkar hálfu. En að efninu. Einn stjórnarmeðlima okkar ritaði á heimasíðu okkar eftirfarandi: ,,Ég þoli alveg að vera kallaður veruleikafirrtur og fífl. En þegar hann kallar Dolph leðurhomma þá fer hann yfir strikið!" Varpa ég þessu fram sem mælt væri úr munni okkar allra, og bið þig um að hugsa ráð þitt.
Það væri mér nefnilega sannur heiður að bjóða þér sættir fyrir hönd FDL, undirritaður er þess meira að segja fús að lána þér meistaraverkið Showdown in Little Tokyo til þess að sýna þér Dolph í allri sinni dýrð. Eftir að hafa séð hana er ég þess fullviss að þú myndir sjá að þér, og bíður þín þá innganga í félagið sem heiðursmeðlimur.
Því eins og ritað er einhvers staðar, þykir Dolph vænna um einn sauð sem ráfað hefur frá hjörðinni og séð að sér, en sex (við erum sex í stjórn FDL) aðra sem aldrei hafa farið burt.
Kveðja,
Oddur Þorri
(sem vissulega er skólastrákur, veruleikafirrtur og öllu framar fífl, en mun aldrei bera merki Dolph feti lægra þó hann standi einn í ólgusjó Óvina Fullkomnunar.)

Nr. 1 | Oddur Þorri, stjórnarmeðlimur FDL og höfundur opna bréfsins. | 15.02.2005 | 23:03:05 | [+] |

BlackAdder er toppurinn. Þetta eru bestu fréttir sem ég hef fengið í langan tíma.

Nr. 2 | Ingó | 16.02.2005 | 0:14:33 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff