Fimmtudagur, 17. febrúar 2005
... eða Blóðspor
Ég horfði á Reservoir Dogs eina ferðina enn á gamlársdag. Það er alltaf gaman að velta sér upp úr tengingunum sem Tarantino gerir á milli handrita sinna en frá Res Dogs liggja þræðir yfir til True Romance, Natural Born Killers, Pulp Fiction og nú síðast fann ég tengingu við Kill Bill.
Hitt er gamall fróðleikur. Þegar Joe spyr Mr. White (Harvey Keitel) fregna af Alabama á hann auðvitað við Alabama (Patricia arquette) úr True Romance en í upprunalegu handriti QT deyr Clarence (Christian Slater) sem gefur Bama tilefni til að húkka upp með Larry (Mr. White). Tony Scott tímdi ekki að drepa Clarence í myndinni sinni og gerði QT því vitaskuld fokvondan.
Mr. Blonde hetir réttu nafni Vic Vega og er bróðir Vincent Vega sem gerði garðinn frægan í Pulp Fiction nokkrum árum síðar. Þegar Vic gengur í hóp Reservoir hundanna er hann á reynslulausn og er með óþolandi skilorðsfulltrúa sem heitir Seymour Scagnetti. Seymour þessi (sem sést aldrei og kemur aðeins við sögu í samtölum) er bróðir óþverralöggunnar Jack Scagnetti sem Tom Sizemore leikur með miklum bravúr í NBK.
Og þá er komið að rúsínunni í pylsuendanum og tengils á milli Reservoir Dogs og Kill Bill:
EDDIE
Jesus Christ, give me a fuckin
chance to breathe. I got a few
questions of my own, ya know.
MR. WHITE
You ain't dying, he is.
EDDIE
I'll call somebody.
MR. WHITE
Who?
EDDIE
A snake charmer, what the fuck d'you think. I'll call a doctor, take care of him, fix 'm right up. Now, where's Mr. Brown and Mr. Blue?
Þarna fær maður ekki betur séð en Nice Guy Eddie sé að leggja til/ hóta því að hringja í Bill en hann er auðvitað einnig þekktur sem Snake Charmer enda beitti hann nörðunum Black Mamba, California Mountain Snake, Copperhead og Cottonmouth fyrir sig og maður þorir varla að hugsa þá hugsun til enda hvernig hefði farið ef það morðingjagengi hefði mætt til að skakka leikinn í vöruskemmunni í hundamyndinni. Þá fyrst hefði blóðið farið að fossa.
True Romance tengist svo The Sopranos órjúfanlegum böndum þar sem þar mætir James Gandolfini til leiks í smáhlutverki (löngu áður en hann sigraði heiminn sem Tony Soprano) og lemur Alabama í stöppu í einu ruddalegsta slagsmálaatriði síðustu ára.
| 16:41 |