»  off record  »  The Dawn of the Dead
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
The Dawn of the Dead
Föstudagur, 25. febrúar 2005

xpunisher.gifÍ dag er svokallaður ÍMARK dagur en þá hópast saman auvirðilegasta pakk landsins og veitir sjálfu sér lúðra fyrir bestan árangur í að slá ryki í augu almennings.

Hatur mitt á markaðshyskinu nær alveg aftur til bensínstöðvaáranna og hefur ekkert með blaðamennskuna að gera eins og sumir vilja meina. En í hvert skipti sem eitthvert markaðsidjótið hjá Esso fékk hugmynd bitnaði það auðvitað fyrst og fremst á mér og mínum mönnum í fremstu víglínu.
Heimurinn væri betri og einfaldari ef þessi hjörð lygara og lýðskrumara væri ekki til enda á fólk að vera fullfært um að taka sínar neysluákvarðanir sjálft. Þar fyrir utan er þetta fólk upp til hópa svo ofboðslega shallow og hefur varla lesið neitt annað en Philip Kotler og einhverjar bjánakenningar sem ganga út frá því að fólk sé línurit, kúrfur og tölur. Það er því ekki skrítið að heimsmynd þessa pakks sé brengluð en það væri svo sem í lagi ef það væri ekki svona ógeðslega tilgangslaust, erfitt og óendanlega leiðinlegt að tala við þetta lið.

Stupid person. Why have you come to my planet?

Fann upp máltæki um daginn: Ef ég væri Hitler væru markaðs- og sölufólk gyðingar.

Ég var að ræða þetta við umbrotsliðið í gær en það hefur skiljanlega horn í síðu auglýsingapakks. Í samræðunum kom upp sú hugmynd að sprengja Háskólabíó á ÍMARK degi og gera þannig mikla landhreinsun. Tillagan var samþykkt en undarlegra þótti mér þegar Sæmi sagði að til þess að fullkomna líf sitt þyrfti hann að sprengja tvær sprengur: ÍMARK daginn og Pressuballið. Hver getur haft eitthvað á móti blaðamönnum?


| 10:25 |
komment

Vá þetta er æðisleg hugmynd! Löngu tímabært að losna við þessi meindýr. Ég hef aldrei haft spurnir af því að markaðsmenntaður einstaklingur hafi fengið orginal hugmynd.

Nr. 1 | Ingolfur | 25.02.2005 | 14:34:12 | [+] |

Heyrheyr!

Nr. 2 | Gunnar | 25.02.2005 | 14:57:41 | [+] |

sammála síðasta ræðumanni, heyheyr!
-en að öllu gamni slepptu ég held að þetta fólk hafi neytt sjálft sig til að fara út á þessa braut í lífinu, m.a. til að hafa það fjárhagslega öruggt í lífinu. Vestræn samfélög móta manninn á ýmsa vegu, en flestar reglurnar og flest viðmiðin eru andstæða við það sem er manninum eðlislægt.
Ég hugsa að engum langi til að markaðssetja vöru nema að hún hafi einhverja merkingu.
p.s. fylgist reglulega með badabing.is ;)

Nr. 3 | Ýr | 26.02.2005 | 8:50:18 | [+] |

Engin bein lýsing frá Oscar frænda?

Nr. 4 | AlanHudson | 28.02.2005 | 1:31:20 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff