»  off record  »  mars 2005
off record
mars 2005

a long time ago...
Síðasta færslan
Föstudagur, 25. mars 2005

fuck.gifLíkt og Lúsífer forðum þyrlaði hann upp ryki þegar hann féll.

Tæplega tveimur árum síðar reis hann upp og svo skemmtilega vildi til að það var í kringum páska.

Það tók Eðlukónginn nokkurn tíma að ná áttum eftir að hann vaknaði. Veldi hans hafði breyst og þetta var greinilega ekki Grænland. Skilningarvitin vöknuðu hvert af öðru eftir því sem sopunum fjölgaði allt þar til hann var orðinn ofurnæmur. Og þegar hann horfðist í augu við fyrsta andstæðinginn var eins og hann hefði staðið á vígvellinum síðast í gær. Herópið kom af sjálfu sér:

I AM THE LIZARD KING AND I CAN DO ANYTHING!!

Framhaldið þekkja allir: Ammaðín og hoppaðu upp í rassgatið áðér!

So long suckers whom I´ve always hated I´ll see you all in hell


Lions in the street and roaming
Dogs in heat, rabid, foaming
A beast caged in the heart of a city
The body of his mother
Rotting in the summer ground
He fled the town

He went down South and crossed the border
Left the chaos and disorder
Back there over his shoulder

One morning he awoke in a green hotel
With a strange creature groaning beside him
Sweat oozed from its shiny skin

Is everybody in?
The ceremony is about to begin

Wake up!
You can’t remember where it was
Had this dream stopped?


Sjort kötts part tú
Þriðjudagur, 22. mars 2005

evolution.gifHa?
Jæja þá er Fisský (Ágúst Borgþór kippir sér varla upp við það að ég uppnefni geðsjúkan snilling og gyðingahatara) sennilega að mæta á svæðið. Skilst að Doddsson hafi ákveðið að græja þetta á föstudaginn með orðunum "æi, kýlum á þetta það munar ekkert um einn vitleysinginn enn." Töff er ef satt er enda er Davíð búinn að vera í toppformi í þessu Fischermáli. Alveg vintage Davíð.

Ég held samt að við höfum ekkert við Fischer að gera hérna enda eigum við ekki einu sinni stofnun sem getur hýst hann eins og Gunnar í Krossinum hefur bent á.
Laugurinn var að útskýra hluta af fílósófíu Fischers fyrir mér um daginn. Kaflanum sem snýr að Bandaríkjunum. Hvítu mennirnir eiga að hunskast aftur til Evrópu, svörtu mennirnir til Afríku og landið á að standa autt fyrir native americans svokallaða indíjána. "En hvað um gyðingana", spyr minns að bragði?
"ha, já. Drepa þá."

Jamm Fischer er með þetta á tæru. Við Hrafn ræddum Fischer við nokkra djúpvitringa, sem hafa sopið nokkrar fjörur í botn, á Langa bar í sumar. Þar lét einn þessa ómetanlegu setningu falla: "Manngildi verður ekki metið í ELO stigum."

Ég hef ótal ástæður til að vera stoltur af börnunum mínum en Nóna bræddi mig alveg á laugardaginn þegar við horfðum á Gísla Martein með öðru auganu. Þegar Birgitta Haukdal var í mynd spurði ég 12 ára unglinginn minn hvort hún vissi hver þetta væri? Neibb. Hafði ekki hugmynd. Hún veit heldur ekkert hvað Nylon er enda hlustar hún ekki á drasl og nefnir John Williams og Danny Elfman sem sína uppáhaldstónlistarmenn. Nördismi og gáfur fara saman auk þess sem ég er auðvitað frábær uppalandi.

Mér finnst blogg ógeðsleg og fánýt iðja og þær bloggsíður sem taka pláss á netinu bera sjálfumgleði eigenda sinna háðulegt vitni. Björn Bjarnason er undanskilinn þessu þar sem síðan hans þjónar praktískum tilgangi og á erindi við fjöldann. Sjálfur ætla ég samt ekki að hætta fyrr en ég fæ diss frá háskólamenntuðum krypplingi með minnimátatrkennd sem kallar sig Rýninn. Hann er alveg að hitta í mark og þeir sem hafa lent í honum ættu að sýna sóma sinn í að hætta öllu bloggi.

Vitringur einn kom og heilsaði upp á mig í vinnunni um daginn. Ég þekki ekki marga vitringa þannig að þetta var ánægjulegt. Við glímum við sama vanda en hann verður stundum svo leiður á sjálfum sér að ef honum væri ekki gefinn sá eiginleiki að geta endurmetið sjálfan sig og skipt um skoðanir lægi hann veikur með ógeð.

Tell me about it. Annars er ég bara alltaf í IKEA að fíla mig, kaupi alls konar things í Tiger, er ástfanginn upp fyrir haus og er að fíla nýju þvottavélina mína.


Grjótkast úr glerhúsi
Mánudagur, 21. mars 2005

Ég átti að vera í Palestínu með þingmönnunum sem voru grýttir en komst ekki. Þykir það miður þar sem það hefði komið vel á mig að fá á mig grjót úr glerhúsum þar sem ég stunda þá kastlist sjálfur af miklum móð. Hefði komið vel á vondan og verið einhvers konar pathetic justice.

Ísraelsmenn voru víst eitthvað skúffaðir yfir því að sendinefndin ætlaði að eyða meiri tíma með Aröbum en gyðingum en fyrr má nú aldeilis fyrrvera að mana krakka upp í grjótkast á Magnús Þór og Jónínu.
Ég vil nú ekki fara í einhverjar Bobby Fischer stellingar en það er eitthvað morkið við það að fullorðið fólk í Ísrael smali krökkunum sínum upp úr sundlaugunum til þess að kasta grjóti í Íslendinga sem eru komnir að kynna sér það ranglæti sem felst í því að Arabar fá ekki vatn að drekka á meðan gyðingabörnin busla í sundlaugum hinum megin við múrinn.


Ljóðahornið
Mánudagur, 21. mars 2005

modern_talking_f copy.gifNú eru tæpir tveir mánuðir í að árshátíð ömurlegra lagahöfunda og lélegra tónlistarflytjenda verði haldin í Kænugarði. Flest Júróvisjón lög eru keimlík ef ekki nákvæmlega eins og því mætti hæglega leggja þessa keppni af og halda Modern Talking hátíð árlega. Sú sveit sendi frá sér slatta af lögum in the eigthies og þau voru merkilegt nokk öll nákvæmlega eins. Það þarf ekki að eyða fleiri orðum í þetta. Hér eru þeir með Brother Louie:


Dear, love is a burning fire
Stay, cause then the flames grow higher
Babe, don't let him steel your heart
It's easy, it's easy
Girl, this game can't last forever
Why ? Why can not live together
Try, don't let him take your love from me
You're not good, can't you see brother Louie, Louie, Louie
I'm in love set you free
Oh, she's only looking to me
Only love breaks her heart brother Louie, Louie, Louie
Only love's paradise
Oh, she's only looking to me
Brother Louie, Louie, Louie
Oh, she's only looking to me
Oh, let it Louie
She's undercover
Brother Louie, Louie, Louie
Oh, doing what he's doing.
So, leave it Louie
Cause I'm a lover
Stay, cause this boy wants to gamble
Stay, love is more than he can handle, girl
Oh, come on stay by me forever, ever
Why does he go on pretending that his love is never ending fate
Babe, don't let him steel your love from me


Nótt hinna löngu hnífa
Miðvikudagur, 16. mars 2005

punisher.gifÉg sótti um vinnu í Fréttablaðinu um daginn en hef engin viðbrögð fengið enn. Getur verið að ég sé í ónáð hjá Framsókn?
Annars er það skondið þegar framsóknarmenn reyna að sverja Auðun fréttastjóra af sér með álíka vatnsheldum rökum og hann hafi aldrei verið í flokknum eða starfað fyrir hann. Þetta gengur þvert á framsóknarmentalítetið (það er að vísu engin munur á því mentalíteti og íhaldsmentalítetinu og George W. Bush mentalítetinu) sem gengur út á það að annaðhvort ertu með okkur eða á móti.

Þau 5 sem talin voru hæfust til að gegna starfi fréttastjóra Fréttastofu Útvarps eru líklega flest afturhaldskommatittir og því án efa í óvinaliðinu. Auðun þarf hins vegar ekkert að vera óháður XB þó hann hafi ekki starfað innan flokksins og hafi hann verið ómengaður áður þá er hann það ekki lengur og það sem Markús Örn, Þorgerður Katrín, Halldór Ásgrímsson og hryggleysingjarnir í Útvarpsráði eiga inni hjá honum núna fyrnist aldrei.
Merkilegast þótti mér að heyra nafn Finns Ingólfssonar í tengslum við þetta vandræðamál en þar sem fingraför hans er að finna er vanalega maðkur í mysunni. Hann er skólabókardæmi um framsóknarmann og er eiginlega orðinn flottari fyrirmynd ungra framsóknarmanna en potarinn Alfreð Þorsteinsson enda hefur Finnur komið ár sinni enn betur fyrir borð en Don Fredo og veit varla lengur aura sinna tal eftir að hafa setið að framsóknarkjötkötlunum í nokkra áratugi.
Uppgangur Finns innan flokksins er ansi dæmigerður fyrir eiginhagsmunapotaraflokknn en hann kom hinum fræga framsóknarrýtingi fyrir í bökum nokkurra félaga sinna og gott ef það er ekki farið að blika á þennan sama kuta í Kópavoginum þar sem framsóknarkerlingafélög eru orðin fleiri en kirkjusóknirnar í bænum.
Anyhu. Einu sinni var ég blaðamaður á vísi.is á meðan Ásgeir Friðgeirsson ritstýrði honum. Þetta var á sama tíma og ríkið var að reyna að gefa (réttum mönnum) Fjárfestingarbanka atvinnulífsins, helst einhverjum öðrum en Orca hópnum ef ég man rétt.
Hvað um það Finnur var þá iðnaðarráðherra og boðaði til blaðamannafundar. Ég var sendur á staðinn og var með 2-3 beittar spurningar í hausnum. Fundurinn fór full friðsamlega fram þannig að ég skaut einni erfiðri á ráðherrann sem svaraði óskiljanlega en í kjölfarið hertu aðrir sóknina á hann þannig að þetta varð hinn fjörugasti fundur og Finnur þurfti á allri sinni leikni í útúrsnúningum að halda.
Nokkrum dögum seinna átti ég erindi við Finn og sló á þráðinn. Þetta var í þá daga sem ég notaði teip og gat því skemmt mér og öðrum með afspilun samtalsins sem var eitthvað á þessa leið:

Finnur: Ert þú ekki Þórarinn Þórarinsson?
ÞÞ: Jú.
Finnur: Sonur Þórarins Þórarinssonar?
ÞÞ: Já.
Finnur: Sonar Þórarins Þórarinssonar Tímaritstjóra:
ÞÞ: Já.
Finnur: Afhverju léstu þá svona á fundinum?

I rest my case.


First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff