Mánudagur, 21. mars 2005
Ég átti að vera í Palestínu með þingmönnunum sem voru grýttir en komst ekki. Þykir það miður þar sem það hefði komið vel á mig að fá á mig grjót úr glerhúsum þar sem ég stunda þá kastlist sjálfur af miklum móð. Hefði komið vel á vondan og verið einhvers konar pathetic justice.
Ísraelsmenn voru víst eitthvað skúffaðir yfir því að sendinefndin ætlaði að eyða meiri tíma með Aröbum en gyðingum en fyrr má nú aldeilis fyrrvera að mana krakka upp í grjótkast á Magnús Þór og Jónínu.
Ég vil nú ekki fara í einhverjar Bobby Fischer stellingar en það er eitthvað morkið við það að fullorðið fólk í Ísrael smali krökkunum sínum upp úr sundlaugunum til þess að kasta grjóti í Íslendinga sem eru komnir að kynna sér það ranglæti sem felst í því að Arabar fá ekki vatn að drekka á meðan gyðingabörnin busla í sundlaugum hinum megin við múrinn.
| 18:56 |