Þriðjudagur, 22. mars 2005
Ha?
Jæja þá er Fisský (Ágúst Borgþór kippir sér varla upp við það að ég uppnefni geðsjúkan snilling og gyðingahatara) sennilega að mæta á svæðið. Skilst að Doddsson hafi ákveðið að græja þetta á föstudaginn með orðunum "æi, kýlum á þetta það munar ekkert um einn vitleysinginn enn." Töff er ef satt er enda er Davíð búinn að vera í toppformi í þessu Fischermáli. Alveg vintage Davíð.
Ég held samt að við höfum ekkert við Fischer að gera hérna enda eigum við ekki einu sinni stofnun sem getur hýst hann eins og Gunnar í Krossinum hefur bent á.
Laugurinn var að útskýra hluta af fílósófíu Fischers fyrir mér um daginn. Kaflanum sem snýr að Bandaríkjunum. Hvítu mennirnir eiga að hunskast aftur til Evrópu, svörtu mennirnir til Afríku og landið á að standa autt fyrir native americans svokallaða indíjána. "En hvað um gyðingana", spyr minns að bragði?
"ha, já. Drepa þá."
Jamm Fischer er með þetta á tæru. Við Hrafn ræddum Fischer við nokkra djúpvitringa, sem hafa sopið nokkrar fjörur í botn, á Langa bar í sumar. Þar lét einn þessa ómetanlegu setningu falla: "Manngildi verður ekki metið í ELO stigum."
Ég hef ótal ástæður til að vera stoltur af börnunum mínum en Nóna bræddi mig alveg á laugardaginn þegar við horfðum á Gísla Martein með öðru auganu. Þegar Birgitta Haukdal var í mynd spurði ég 12 ára unglinginn minn hvort hún vissi hver þetta væri? Neibb. Hafði ekki hugmynd. Hún veit heldur ekkert hvað Nylon er enda hlustar hún ekki á drasl og nefnir John Williams og Danny Elfman sem sína uppáhaldstónlistarmenn. Nördismi og gáfur fara saman auk þess sem ég er auðvitað frábær uppalandi.
Mér finnst blogg ógeðsleg og fánýt iðja og þær bloggsíður sem taka pláss á netinu bera sjálfumgleði eigenda sinna háðulegt vitni. Björn Bjarnason er undanskilinn þessu þar sem síðan hans þjónar praktískum tilgangi og á erindi við fjöldann. Sjálfur ætla ég samt ekki að hætta fyrr en ég fæ diss frá háskólamenntuðum krypplingi með minnimátatrkennd sem kallar sig Rýninn. Hann er alveg að hitta í mark og þeir sem hafa lent í honum ættu að sýna sóma sinn í að hætta öllu bloggi.
Vitringur einn kom og heilsaði upp á mig í vinnunni um daginn. Ég þekki ekki marga vitringa þannig að þetta var ánægjulegt. Við glímum við sama vanda en hann verður stundum svo leiður á sjálfum sér að ef honum væri ekki gefinn sá eiginleiki að geta endurmetið sjálfan sig og skipt um skoðanir lægi hann veikur með ógeð.
Tell me about it. Annars er ég bara alltaf í IKEA að fíla mig, kaupi alls konar things í Tiger, er ástfanginn upp fyrir haus og er að fíla nýju þvottavélina mína.
| 21:41 |