»  off record  »  apríl 2005
off record
apríl 2005

a long time ago...
Mórar og skottur
Miðvikudagur, 27. apríl 2005

Í tilgangslausum og dularfullum veikindum mínum hef ég legið í móki og horft á ALF pilotinn, a.m.k. einn Miami Vice þátt, Toxic Avenger IV og brunað í gegnum Daredevil Director´s Cut. Þessi lengda útgáfa er sjálfsagt skárri en bíóversjónin en breytir engu um það að þessi moðsuða eyðileggur Daredevil algerlega. Hefði leikstjóraversjóninn átt að breyta einhverju til eða frá hefði þurft annan aðalleikara og nýtt handrit byggt á verkum Franks Miller um DD. Það sést best á Sin City hversu gott bíó er hægt að búa til úr efni Millers. Það þarf bara að vera trúr frumtextanum.

Hef líka verið að klára Engla og djöfla sem ég byrjaði á fyrir jól. Hún er nákvæmlega eins og Da Vinci lykilinn. Æsispennandi, fáránlega einföld og barnaleg. Innihaldsrýr og klassískur Ludlum reyfari sem er dulbúinn sem djúpt bókmennaverk með táknfræðivaðli Roberts Langdons sem er leiðinlegt persóna og á ekkert betra skilið en að vera leikinn af Tom Hanks (sem er leiðinlegur leikari). Ekki misskilja mig samt. Þetta er þrælskemmtileg bók, bara illa skrifað og kjánalegt drasl með bjánalegum endi sem er eins og í Da Vinci Code allt of einfaldur fyrir það sem á undan er gengið. Deus ex machina eða eitthvað? Sjónvarpsþættirnir 24 eru fullkomið ígildi bóka Dans Brown. Spennandi, skemmtilegir og þrælbillegir.


18 vitrænar færslur
Miðvikudagur, 27. apríl 2005

Bjartsklíkuboltinn Hermann Stefánsson birtir Átján færslur úr óstofnaðri bloggsíðu um samhengisleysið í alheiminum á Kistunni og hittir naglana nokkrum sinnum á hausinn.

Ekki síst hér:

"Samskiptareglu bloggsíðna hættir til að vera þessi: Ef þú segir eitthvað á annað borð skaltu gæta þess að gefa um leið algjöran skít í alla aðra. Reyndu að koma því til skila að þú sért óravíddum á undan hinum í umræðunni og hátt, hátt yfir hana hafinn að öllu leyti. Jafnvel yfir það hafinn að vera yfir hana hafinn. Einhverskonar skotgrafarskítkast þar sem hverjum og einum einasta virðist allt sem allir aðrir hafa fram að færa jafn fráleitt... Og þó er þetta stundum allsekki svona."

Og hér:

"Ferli málefna líðandi stundar er nokkurn veginn svona: DV slær því upp og gefur þátttakendum gælunafn; pistlahöfundur Fréttablaðsins fjallar um það á skeleggan hátt í Bakþönkum; Morgunblaðið birtir dulnefnda eða ófeðraða athugasemd um málið; Guðbergur Bergsson segir eitthvað sem ekki kemur málinu beinlínis við; Guðmundur Steingrímsson leikles gamanmál um efnið í Víðsjá og notar til þess persónufornafnið „ég“; Eiríkur Guðmundsson lýsir því yfir í sama þætti að sér sé alveg sama um málið; yfirleitt er ég sammála síðasta ræðumanni."


Ljóðahornið
Mánudagur, 25. apríl 2005

Deildin mín er alltaf með theme song í gangi. Þessa dagana er það Rhinestone Cowboy með snillingnum Glen Campbell. Engir nema innvígðir gætu mögulega botnað í tengingunum en lagið er engu að síður gott.

I've been walkin' these streets so long
Singin' the same old song
I know every crack in these dirty sidewalks of Broadway
Where hustle's the name of the game
And nice guys get washed away like the snow and the rain
There's been a load of compromisin'
On the road to my horizon

But I'm gonna be where the lights are shinin' on me
Like a rhinestone cowboy
Riding out on a horse in a star-spangled rodeo
Like a rhinestone cowboy
Getting cards and letters from people I don't even know
And offers comin' over the phone


Well, I really don't mind the rain
And a smile can hide all the pain
But you're down when you're ridin' the train that's takin' the long way
And I dream of the things I'll do
With a subway token and a dollar tucked inside my shoe
There'll be a load of compromisin'
On the road to my horizon
But I'm gonna be where the lights are shinin' on me


Like a rhinestone cowboy
Riding out on a horse in a star-spangled rodeo
Rhinestone cowboy
Gettin' cards and letters from people I don't even know
And offers comin' over the phone


Like a rhinestone cowboy
Riding out on a horse in a star-spangled rodeo

Like a rhinestone cowboy
Gettin' card and letters from people I don't even know


Zippó
Fimmtudagur, 21. apríl 2005

Fólk var eitthvað ekki alveg að kaupa þessa meintu "síðustu færslu" og fallið sem þar var gefið í skyn enda færi það sjálfsagt ekki fram hjá neinum í mínu nánasta umhverfi ef The Lizard King myndi rísa á fætur á ný.
Anyhu! það breytir því ekki að ég er kominn með ógeð á þessari síðu og bloggi yfirleitt. Blogg er svolítið eins og Zippó kveikjari en það var einu sinni töff að nota Zippó áður en alls konar leppalúðar og jafnvel fólk sem ekki reykti fór að spóka sig með þannig kveikjara. Þá var þetta bara halló og töffarar urðu að gera eins og Þjóðverjar forðum og fara aftur í gasið.

Ég notaði þessi rök á Manninn með hattinn þegar ég reyndi að útskýra þetta tímabæra "hætt" mitt um daginn og benti honum, réttilega á, þá er eitthvað morkið við það að eðalstílistar séu að halda úti bloggi þegar aragrúi illa- eða óskrifandi moðhausa halda úti svona síðum. When the going gets tough, the tough get going og allt það.
Maðurinn með hattinn glotti, tók upp Zippó og kveikti í rettu. Og þá rann það upp fyrir mér að það er enginn leið að hætta og Lloyd Kaufman innsiglaði þessa hugsun svo þegar við ræddum um Toxic Avenger, Bogart og almenna heimsku.

Badabing skal því sverja sig í ætt við herpes og Troma og fara aldrei. Ég verð samt að láta breyta útliti síðunnar áður en ég æli og framvegis mun hún bara innihalda "ekta" hallæris blogg. Það verða engar djúpar pælingar, árásir á Framsóknarflokkinn eða Punisher færslur um fíflin á Málefnin.com. Bara svona skýrslur um það hvað ég er að hugsa og gera. Fréttir af andlegu ástandi mínu, fjárhag og því sem ég að að versla á Amazon.com. Spennó.


Also sprach Tóti
Miðvikudagur, 20. apríl 2005

Just when I thought that I was out they pull me back in.

Það var ekki laust við að Blaðamaðurinn væri ögn ringlaður eftir tæplega mánaðardvöl í hellinum en hann náði áttum þegar Zaraþústra (eða var það Lloyd Kaufman?) hvarf aftur til fjalla og inn í einsemd hellisins fjarri mannabyggðum.
Blaðamaðurinn leit vantrúaður upp. "Ef þú ert að segja satt," sagði hann síðan, "þá glata ég engu þótt ég týni lífinu. Ég er þá lítið annað en dýr sem með barsmíðum og naumum matargjöfum hefur verið kennt að dansa."

"Ekki er því svo farið," mælti Zaraþústra (eða var það Lloyd Kaufman?); þú hefur gert áhættuna að starfi þínu, slíkt ber alls ekki að forsmá. Nú ferst þú vegna starfs þíns: þess vegna ætla ég að grafa þig með mínum eigin höndum."

Blaðamaðurinn klóraði sér í hausnum og leið eins og hann væri að skrá sig í meðferð. "Er þetta ekki full langt gengið? Ég meina það er ekki eins og maður sé Ofurmenni."

"Alveg er mér sama," sagði Zaraþústra. "Ég nenni ekki að grafa þig hvort eð er. Þú getur líka alltaf tekið hinn kostinn og haldið áfram. Verið eins herpes, eins og ég og þá munt þú aldrei hverfa," sagði Lloyd Kaufman (eða var það Zaraþústra?)


Þrótmói
Þriðjudagur, 19. apríl 2005

HVER SKAPAÐI SÝKLA?


First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff