Miðvikudagur, 27. apríl 2005
Bjartsklíkuboltinn Hermann Stefánsson birtir Átján færslur úr óstofnaðri bloggsíðu um samhengisleysið í alheiminum á Kistunni og hittir naglana nokkrum sinnum á hausinn.
Ekki síst hér:
"Samskiptareglu bloggsíðna hættir til að vera þessi: Ef þú segir eitthvað á annað borð skaltu gæta þess að gefa um leið algjöran skít í alla aðra. Reyndu að koma því til skila að þú sért óravíddum á undan hinum í umræðunni og hátt, hátt yfir hana hafinn að öllu leyti. Jafnvel yfir það hafinn að vera yfir hana hafinn. Einhverskonar skotgrafarskítkast þar sem hverjum og einum einasta virðist allt sem allir aðrir hafa fram að færa jafn fráleitt... Og þó er þetta stundum allsekki svona."
Og hér:
"Ferli málefna líðandi stundar er nokkurn veginn svona: DV slær því upp og gefur þátttakendum gælunafn; pistlahöfundur Fréttablaðsins fjallar um það á skeleggan hátt í Bakþönkum; Morgunblaðið birtir dulnefnda eða ófeðraða athugasemd um málið; Guðbergur Bergsson segir eitthvað sem ekki kemur málinu beinlínis við; Guðmundur Steingrímsson leikles gamanmál um efnið í Víðsjá og notar til þess persónufornafnið „ég“; Eiríkur Guðmundsson lýsir því yfir í sama þætti að sér sé alveg sama um málið; yfirleitt er ég sammála síðasta ræðumanni."
| 16:55 |