Fimmtudagur, 05. maí 2005
Badabing! er þriggja ára í dag. Fyrsta færslan er dagsett 05.05.2002 og var bein tilvitnun í klassískan texta úr The Little Sister eftir meistara Chandler.
Off record færslurnar á þessu tímabili eru 493 sem getur nú varla talist neitt gríðarlegt. Heimsóknafjöldinn á dag var orðinn fáránlegur þegar teljaragræjan hrundi fyrir rúmu ári en ég geng að því sem gefnu að gestafjöldinn hafi rýrnað í samræmi við almenna blogghnignun og þau leiðindi sem ríkja hér og annars staðar.
Síðan nýtist mér þó enn vel sem gagnabanki en hún geymir 189 bíódóma, 139 fjölmiðlapistla bæði af Strik.is og úr Fréttablaðinu, bókadómarnir eru öllu færri eða 26 enda hefur mér ekki verið greitt fyrir að dæma bækur í nokkur ár en undir liðnum "eldra" eru 170 greinar vistaðar. Flestar eru þær væntanlega úr Fréttablaðinu, Stuð milli stríða, Brennidepils krappið af Vísi og svo viðtöl sem ég hef tekið og mér finnst skipta einhverju máli. Helgi Hóseasson og Lloyd Kaufman eru skemmtilegustu viðmælendurnir en David Attenborough sá leiðinlegasti.
Brennivínsmeðferðin er sjálfsagt það merkilegasta sem ég hef gengið í gegnum frá því ég byrjaði að blogga og drykkju/þynnku/blakkát færslurnar eru helvíti góð áminning um sjúkleikann en annars getur þessi síða seint talist áreiðanleg heimild um líf mitt. Það er bara of gaman að ljúga, ýkja og færa í stílinn. Ekki get ég gert það í vinnunni þannig að útrásina fæ ég hér. Það er hins vegar mjög gott fyrir mig að geta flett mannanöfnum upp í leitarvélinni en þannig held ég bókhald yfir þá sem ég hef móðgað. Sýnist samt á öllu að ég hefði mátt vera miklu duglegri við að drulla yfir mann og annan. Það er helvítis æðruleysið.
Anyhu! Klárum þetta eins og það byrjaði. Með sítati í eðalprósa eftir mesta rithöfund allra tíma:
What did it matter where you lay once you were dead? In a dirty sump or in a marble tower on top of a high hill? You were dead, you were sleeping the big sleep, you were not bothered by things like that. Oil and water were the same as wind and air to you. You just slept the big sleep, not caring about the nastiness of how you died or where you fell.
P.S. Ingó minn! Búinn að laga kommentakerfið!
| 23:56 |