»  off record  »  100% Star Wars
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
100% Star Wars
Miðvikudagur, 11. maí 2005

vader.gifÞað er haft eftir mér í heilsíðu auglýsingu í dag að

"Revenge of the Sith er áhrifamesta Star Wars myndin síðan The Empire Strikes Back gerði allt vitlaust árið 1980. Dramatíkin og slagkrafturinn í þessum magnaða lokakafla er með ólíkindum. Máttur Lucasar er mikill og hér eyðir hann engum tíma í óþarfa kjaftæði. Þetta er einfaldlega 100% Star Wars."

Ég stend við þessi orð og satt best að segja hugsaði ég mig um tvisvar áður en ég felldi þennan dóm. Episode III er vitaskuld ekki gallalaus frekar en hinar myndirnar 5 en hún rís undir göllunum og ég sé þá ekki einu sinni. Þeir sem vita um hvað málið snýst eru heldur ekki að festa sig í einhverri smásmygli og úbernördisma. Þetta er frábær skemmtun, hrikaleg dramatík auk þess sem myndin festir Obi-Wan í sessi sem mesta warrior Stjörnustríðssögunnar. Mér fannst hann flottastur í Episode IV (að Han Solo frátöldum, auðvitað).
Þetta er ekta Star Wars og ég get ekki beðið eftir að sjá Episode III aftur og aftur og aftur.

Samuel L. Jackson er ógeðslega töff þó hann segi aldrei: "This is your fathers lightsabre. When you absolutely, positively got to kill every motherfucking stormtrooper in the room, accept no substitutes." .

Keisarinn er líka heví, Christopher Lee jafn menacing og í Episode II, The Wicker Man og Dracula, geðveikilsega svalur. Sjálfsævisagan hans heitir líka Tall, dark and gruseome sem gæti alveg eins verið undirtitill Episode III eins og Revenge of the Sith enda gæti ævisaga Svarthöfða, sem á mergjaða innkomu í lokin, hæglega borið þetta nafn. Yoda er líka í toppformi og tölvubrellurnar eru orðnar býsna góðar þegar maður finnur til með þessu litla, græna sýndarveruleikafyrirbæri. Ó, já, Anakin. Hann er alveg að virka líka. Þannig að það eru alveg FIMM stjörnur á þetta.

Ég viðurkenni fúslega að ég lét tilfinningarnar hlaupa með mig í gönur í kringum Episode II og gerði henni of hátt undir höfði. Var bara svo feginn að hún var ekki jafn vond og Episode I. Ég setti hana á lista yfir 10 bestu myndir ársins 2002 hjá Fréttablaðinu

1. Lord of the Rings: The Two Towers
2. Mulholland Drive
3. Spiderman
4. Star Wars Episode 2 (hmmmmmmmmm...?)
5. Panic Room
6. Harry Potter and the Chamber of Secrets
7. A Beautiful Mind (hvað var ég að pæla?)
8. About A Boy
9. Minority Report
10. Road to Perdition


og skekkti þannig heildar niðurstöðuna þegar ég, Biggi og Þráinn Bertelsson vorum teknir saman í eitt.

Biggi dæmdi Episode II í Fréttablaðinu og sagði meðal annars:

"Það sem rokkar: Engir jólasveinar eða börn, nema Jar Jar sem sést aðeins í tæpar 3 mínútur. Lucas þræðir sögufléttur nýju trilógíunnar og þeirrar gömlu saman á vitsmunarlegan hátt. Grunnurinn að falli Anakins er lagður og virðist á bjargi byggður. Tæknibrellurnar?? Óaðfinnanlegar. Hasarinn stoppar nánast ekki í gegnum alla myndina. Veislan er slík að ómögulegt er að kyngja öllum kökubitunum í einu. Yoda og Obi-Wan hafa aldrei verið betur heppnaðir en nú.
Niðurstaða; betri en "Phantom Menace" og "Return of the Jedi". Síðri en "Star Wars" og "Empire Strikes Back"."

Nuff said og grunnurinn að falli Anakins er traustur og fallið er ákaflega sannfærandi í lokakaflanum. Ég sagði samt að Episode II væri ekki "gargandi snilld". Bakka ekki með það og bakka heldur ekki með það að Sith slagar upp í Empire þó A New Hope verði auðvitað alltaf best, svona tilfinningalega séð a.m.k.


| 15:54 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff