Þriðjudagur, 10. maí 2005
Aðalmorðingi mellugengisins í gamla bæjarhluta Sin City er hin banvæna Miho. Hún kastar karatestjörnum sem eru í laginu eins og hakakrossar, flugbeitt helvíti sem klippa útlimi af eins og ekkert sé. Þú hvorkir heyrir í né finnur fyrir Miho áður en hún drepur þig nema hún vilji það. Devon Aoki úr 2Fast2Furious leikur þessa klassaninju með tilþrifum í Sin City en svo skemmtilega vill til að Tarantino mætti á tökustað með sverð Brúðarinnar úr Kill Bill þannig að Miho mundar sverð frá Hattori Hanzo þegar hún útdeilir réttlæti í melluhverfinu. Frank Miller var spurður að því í Total Film hvernig leikar myndu fara ef Miho og Brúðurinn mættust:
"Could The Bride turn up? Yeah. But Miho would kill her."
Amen to that