Fimmtudagur, 05. maí 2005
Er búinn að sjá myndina sem bjargaði lífi mínu löngu áður en hún var gerð. Shit, hvað hún er góð. Ég er í tilfinningalegu uppnámi og þurfti að halda aftur af tárunum á köflum. Sat í mauki í salnum og óskaði þess að ég gæti fengið að vera barn aftur til þess að njóta þessa í botn. Þegar þetta verður allt skoðað í sögulegu samhengi í framtíðinni munu The Empire Strikes Back og þessi mynd standa upp úr sem mikilvægustu og bestu vörðurnar á hræðilegum ferli Anakins.
Nú skil ég fullkomlega hversu mikill þungi og merking var í orðunum "You should not have come back" og "I´ve been waiting for you Obi-Wan". Það var hell to pay og fokk hvað hann er vondur.
Rise Lord Vader!
Obi-Wan er samt okkar maður, ekki spurning.