Þriðjudagur, 10. maí 2005
Fólk heldur því fram í fúlustu alvöru að kærastan mín (og lögleg sambýliskona frá og með deginum í dag) sé svo lík einhverri Hildi Völu, sem er að því að mér skylst einhvers konar ídol, að þær gætu verið tvíburar. Fékk geisladisk þessarar Hildar Völu í hendurnar í dag og skoðaði myndirnar. Hún er sjálfsagt besta skinn, stúlkan, og alls ekkert ófríð en Þóra er miklu fallegri, að maður tali nú ekki um sætari. Ég bar þetta undir annálað smekkfólk í dag og niðurstaðan er einróma: Þóra er svo miklu flottari að það er út í hött að tala um að þær séu líkar.
Hell yeah!