Miðvikudagur, 11. maí 2005
Ég er óstarfhæfur og allur í keng vegna þess að margt af því sem var mér svo kært og var dautt er að rísa upp á ný. Síðasta Star Wars myndin er crazy, Duran Duran eru að koma og Mickey Rourke er byrjaður að sýna stórleik aftur.
Viðtal við Simon Le Bon á morgun og svo til Cannes um helgina að elta Rourke uppi. Meika þetta ekki enda held ég að það sé dauðlegum mönnum ekki gott að horfast í augu við ídolin sín. Bogart og Byron eru sem betur fer dauðir.
Annars er það helst að frétta að ég er byrjaður að semja texta fyrir Leoncie. Þetta er þegar komið:
Take me down to Satan city,
where the cops are croocked and the Indian princess is pretty........
Ást er ... að leigja saman Friends þætti. Þá vitið þið að þið eruð í rótgrónu sambandi sem er komið til að vera.
Fjölmiðlaparið gerði þetta í gær og horfði á 4 þætti úr seríu 10. Held ég hafi hætt að fylgjast með Friends í 8. seríu og mikið rosalega hefur þetta snöggversnað. Liðið allt orðið gamalt og ljótt og brandararnir ótrúlega þreyttir. Það mátti þó hlæja á stöku stað en það var greinilega tímabært að slútta þessu. Shit, hvað Joey er leiðinlegur. Nánast þroskaheftur. Hverjum dat í hug að gera spin off með þessu erkigerpi?
Ást er líklega miklu frekar þetta en það sem Mogginn heldur fram daglega.
Þetta er líka helvíti gott
| 17:29 |