Sunnudagur, 19. júní 2005
Ég held ég sé búinn að ferðast meira á þessu ári en samanlagðri ævi minni hingað til. Testaði Þingvelli um helgina en trippið náði hápunkti í dag þegar kvenagengin fögnuðu 90 ára afmæli kosningarréttar. Minningarathöfnin við Drekkingarhyl var kyngimögnuð í þöglum einfaldleik sínum og maður varð allur einhvern veginn meyr og klökkur þegar 18 bleiku rósunum var fleytt til minningar um jafn margar konur sem var drekkt í hylnum. Þurfti að útskýra fyrir Dodda að það væri nauðsynlegt að minnast gamalla grimdarverka í þeirri von um að slíkt kæmi í veg fyrir að þau endurtækju sig.
Annars var auðvitað hápunktur dagsins þrumuræða Krissu mágkonu sem hitti beint í mark hjá Nónu minni sem ætlar að verða kvenskörungur og fá Fálkaorðu. Það má auðvitað skrifa heilu gígabætin um helvítis orðuna en þar sem ég hef þegar sagt allt sem segja þarf um allt í lífinu á þessari síðu áður minni ég bara á þetta. Líklega besta grein sem ég hef skrifað.
Annars er það besta við að vera blaðamaður í sumarfríi að maður getur látið eftir sér að sleppa því að lesa blöðin á hverjum degi og fara í bíó eða kaffihús frekar en að horfa á sjónvarpsfréttir. Maður einbeitir sér miklu frekar að slúðrinu og óbirtingarhæfum sögum sem aldrei mætti prenta. Splæsti samt í helgar DV til að skoða fína fólkið í brúðkaupinu. Það er til svo mikið af fallegu fólki.
| 19:36 |