»  off record  »  a year of sundays
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
a year of sundays
Fimmtudagur, 30. júní 2005

Sonur Framsóknarflokksins er búinn að vera að blasta Duran Duran í allan dag í vinnunni og ég er loksins orðinn spenntur. Búinn að fara yfir lagalistann með útvarpsgúrúunum Birni Þór og Svenna Guðmars og já, þetta verður skothelt prógramm þannig að við Stjáni erum byrjaðir að æfa danssporin úr Planet Earth vídjóinu.

Fann stúdentsskírteinið eftir mikla nostalgíu leit í fyrradag. Það var svo djúpt á þessu helvíti að gamlir vitnisburðir úr Snælandsskóla og samræmdu prófin dúkkuðu upp áður en ég fann þetta helvítis plagg frá MK. Maður er greinilega ferlega bright á pappírnum en ég skil ekki enn hvers vegna HÍ vill fá þetta frá mér aftur eftir að hafa nú þegar leyft mér að drepa 4 ár innan veggja stofnunarinnar.

Fann líka símskeytið sem Halli og Óli á bensínstöðinni sendu mér þegar ég útskrifaðist:

Innilegustu bindishnúta- og slaufuhamingjóskir með snobbskírteinið þitt.

Vaktin Stórahjalla.


| 15:14 |
komment

The Seventh Stranger - sjáumst á eftir.

Nr. 1 | Óli Gneisti | 30.06.2005 | 16:20:23 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff