Föstudagur, 24. júní 2005
Sumarfríið mitt er að verða búið og sennilega tækist engum öðrum en mér að leggjast í flensu á síðustu metrunum en þessi móðir allra vikna í fríinu er búin að fara meira og minna í höfuðverk og mók. Lofaðir séu verkalýðsfrömuðir fortíðarinnar sem hafa með svita sínum og blóði séð til þess að þessir dagar mínir verði ekki að hreinu tapi.
Anyway. Ég er eiginlega ekki búinn að lesa neitt af því sem ég ætlaði að lesa í fríinu og enn síður glápa á allt það sem ég ætlaði að glápa. Helvítis sólin setti strik í reikninginn en ég gerði ráð fyrir því að geta verið innipúki í mánuð með góðri samvisku í staðinn varð ég sóldýrkandi sem eyddi dögunum í að eltast við að kattsa tan.
Tókst samt að klára fyrsta season af Miami Vice á mánudaginn og byrjaði fríið á því að klára þriðja season af 24 sem er líklega snjallasti árgangurinn so far. Annars hefur ekkert gengið á bunkann sem ég verslaði hjá honum Amazon í vor. Bara búinn með tvo þætti af Philip Marlowe Private Eye prýðilegum þáttum með Powers Boothe í lykilhlutverkinu. Sjónvarpið sýndi þá þegar ég var krakki á frumstigi Marlowe dýrkunnar minnar og ég hef leitað að þeim logandi ljósi síðan þá. Þið sem hafið eitthvert vit á þessu ættuð að fylgjast með Boothe fara á kostum í Sin City í hlutverki Senator Roark að ég tali ekki um Rutger Hauer í hlutverki prestsins og drullusokksins bróður hans.
Bara búinn með einn þátt í Twin Peaks kassanum og ekki búinn að skoða endurbættu DVD útgáfuna af The Big Sleep sem er ekkert annað en reginhneyksli. Ég er öllu rólegri yfir því að vera bara búinn með ALF pilotinn. Keypti þetta meira í flippi og það er ekki að sjá að þessir þættir eldist mjög vel. Var höfundurinn líka ekki að skrifa þetta á heróíni?
Japanska, upprunalega Dark Water er líka búin að liggja óséð uppi í hillu í rúmt ár. Verð að sjá hana áður en ameríska endurgerðin eftir Walter Salles kemur í bíó. Sjálfur var leikstjórinn nú ekkert gapandi af hrifiningu þegar ég ræddi um hana við hann í vor. Ég er líka búinn að draga það í marga mánuði að horfa á House of 1000 Corpses eftir Rob Zombie en það þolir enga bið enda gaurinn allur að verða meinstrím.
... svo ætti maður auðvitað að horfa á allt Star Wars klabbið með börnunum sínum
| 18:44 |