»  off record  »  Bandalag snáksins
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Bandalag snáksins
Fimmtudagur, 23. júní 2005

Duran Duran3.gifDjúran tensjónið er byrjað að hækka hressilega enda styttist í tónleikana. Pétur í Boss hringdi í gær til að tékka á diskastatus hjá mér. Ég á auðvitað allt heila klabbið á vínyl en er búinn að týna Seven and the Ragged Tiger geisladisknum. Tólf tommurnar eru hornsteinn plötusafns míns en ég á engin B-hliðar lög af 12" á stafrænu formi þannig að ég benti Pétri á þetta snilldarsafnbox sem hann keypti med det samme.

Ísland í dag liðið var eitthvað að þusa um það í kvöld að fólk sem áður skammaðist sín fyrir Duran dýrkun væri að koma út úr skápnum núna og fékk svo Dadda diskó og Sigurjón Kjartansson til að diskútera Djúranið. Sigurjón var ekkert að hata það að dissa DD en var of tilgerðarlegur til þess að þetta væri fyndið. Ég skammast mín fyrir margt en hef aldrei reynt að fela DD og Star Wars geggjunina sem hefur fylgt mér from the dawn of time. Ég er búinn að halda því fram hjá Halla Thorst á Talstöðinni að Duran2 sé dýpsta hljómsveit eitísins og mun væntanlega klifa á því í Kvöldþætti Gumma Steingríms á Sirkús annað kvöld. Fór a.m.k. í tökur um daginn með allar plöturnar með mér og reyndi að raula Planet Earth. Engin takmörk fyrir því sem maður gerir fyrir málstaðinn. Nú síðast var hringt í mig frá DV í dag og ég úttalaði mig um Djúranið án þess að krefjast yfirlesturs þannig að nú bíð ég þess bara að sjá játningar mínar um að ég sé barnaperri með brenglaðan tónlistarsmekk á forsíðu blaðsins.
Er svo að vinna í því að koma áður óbirtum hljóðfælum úr viðtali mínu við Simon Le Bon inn á vefinn. Þar raular hann meðal annars prototýpu af The Seventh Stranger, einu besta lagi sveitarinnar. Spennó.

Annars er þetta allt hégómi og ristir ekki dýpra en svo að ég rétt nenni að drullast upp í Egilshöll þann þrítugasta. Ég meina Duran eru æði en ég þoli ekki fjöldasamkomur, síst af öllu í Grafarvogi.


| 22:07 |
komment

Sæll og takk fyrir síðast.

Ef þú rétt nennir að drullast upp í Grafarvog til að berja æskuhetjurnar augum geri ég ráð fyrir að samkomulag sem gert var á Þingvöllum forðum (síðustu helgi) standi?

Nr. 1 | Gunnar | 24.06.2005 | 9:01:22 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff