Miðvikudagur, 08. júní 2005
Eins og fram hefur komið hata ég ekki Nixon þannig að mér þóttu það stórmerkileg tíðindi að Mark Felt skyldi gefa sig fram sem Deep Throat á dögunum. Hal Holbrook leiðist það varla heldur að fá það á hreint að hann var að leika Felt í All the President's Men. Birni Bjarnasyni leiðist þetta ekki heldur og bendir á tvo áhugaverða linka um málið á heimasíðu sinni, annars vegar sjónarhorn Bobs Woodward og hins vegar Felts. Mér hefði samt þótt meiri fengur í persónulegum vangaveltum Björns sjálfs um málið.
Annar Djúpháls og öllu frægari en Felt verður væntanlega í sviðsljósinu á næstu dögum en á föstudaginn verður heimildarmyndin Inside Deep Throat frumsýnd á Íslandi. Myndin er sjálfsagt frægasta klámmynd allra tíma en hún var tekinn upp á sex dögum og kostaði 25 þúsund dollara í framleiðslu. Yfirvöld í Bandaríkjum kærðu sig ekki um að hún kæmi fyrir sjónir almennings og hún var bönnuð í 23 ríkjum Bandaríkjanna. Hún hefur skilað 600 milljón dollara hagnaði og er sögð arðbærasta mynd kvikmyndasögunnar.
Það vill svo skemmtilega til að hinn Watergate blaðamaðurinn,
Carl Bernstein kemur fram í myndinni ásamt ekki ómerkari mönnum en Wes Craven, Larry Flynt, Hugh M. Hefner, Gore Vidal og John Waters. Djúphálsinn Linda Lovelace verður sjálfsagt fjarri góðu gamni enda kærir hún sig ekkert um forna frægð og reynir að gera allt til að breiða yfir klámmyndafortíð sína. Hún verður samt örugglega sýnd taka stórt upp í sig í heimildarmyndinni en Empire gefur 4 stjörnur og segir vera skarpa heimildarmynd sem er bæði tragísk og fyndin.
Deep Throat fjallaði um stúlku (Lovelace) sem var með sníp í kokinu og þurfti því að totta til að fá fullnægingu. Jamm, þetta er djúp mynd (no pun intended). Dennis Hopper er þulur í heimildarmyndinni og til gamans má geta þess að Nixon bannfærði leikstjóra Deep Throat og aðalleikarann Harry Reems á sínum tíma og taldi þá einna helst handbendi Djöfulsins.
| 11:35 |