»  off record  »  Ó, hve lengi ég beið þín...
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Ó, hve lengi ég beið þín...
Mánudagur, 27. júní 2005

Blaðamanni DV tókst að hafa vænan slatta af Duran Duran viðtalinu rangt eftir mér en ég heyrði það svo sem á meðan viðtalið fór fram að það myndi koma bjagað út og gæti ekki verið meira sama.
Efnislega stenst þetta þó meira og minna allt þó ég hafi auðvitað orðað þetta allt miklu betur. Það er þó alger rangfærsla í upphafi spjallsins við mig að ég sé að "missa" mig úr spenningi yfir komu Duran Duran. Ég missi mig auðvitað aldrei og er stabílli en svo að einir tónleikar geti ært mig. Ég útilokaði hins vegar ekki að ég hefði tjúnast upp ef þeir hefðu komið fyrir 23 árum.
Þetta er auðvitað tittlingaskítur og ég held kúlinu þó einhverjir slái því föstu að það muni líða yfir mig í Egilshöll á fimmtudaginn.

Það getur líka ekkert varpað skugga á gleðina sem hefur heltekið mig eftir að Ólafur Teitur Guðnason sá ástæðu til þess að pirrast út í mig í fjölmiðlagremjuhorninu sínu í Viðskiptablaðinu á föstudaginn. Ég hef sjálfsagt einhvern tíma látið í það skína hérna að mér finnist lítið til þessa blygðunarlausa froðusnakks koma en það yljar mér um hjartaræturnar að vita til þess að "neikvæðu" pistlarnir mínir komi honum úr jafnvægi einu sinni í viku. Á meðan Ólafur Teitur amast við mér er ég að gera eitthvað rétt og það er auðvitað alveg dæmigert að hann þoli það ekki að mér leiðist 17. júní enda maðurinn yfirfullur af þjóðrembingi sjálfstæðismanna með Hitlersæskuuppeldi. Ritstýrði ekki þessi maður ríkisútgefinni bók sem komst að þeirri niðurstöðu að allir forsætisráðherrar landsins hefðu verið æði? Það verður bókstaflega grjóthrun í glerhúsinu þegar þessi maður af öllum telur sér fært að vanda um fyrir öðrum hvað blaðamennsku og almenna geðprýði varðar.
Mér finnst það samt tótallý brilljant að ÓTG skuli láta neikvæðni mína stuða sig svona hressilega milli stríða (pistlarnir heita sko Stuð milli stríða en ekki Stund aspergerinn þinn. Reyna að hafa rétt eftir þú veist hversu við hægrimenn leggjum mikið upp úr því) þar sem ég hef orðið fyrir enn meira áreiti fyrir að vera orðinn óþolandi jákvæður, ljósbleikur og femínískur. Aðdáendur manns gera nefnilega stundum til manns ómanneskjulegar kröfur en "fjölmiðlastjarna" sem er lesinn af nokkur hundruð manns og á allt sitt klapplið í Valhöll hefur auðvitað aldrei þurft að reyna slíkt á eigin skinni.
Gullna reglan um samskipti við króníska bókstafstrúarmenn og fýlupúka er að vísu sú að maður á ekki að svara þeim nema þá helst í aukasetningu þar sem maður gætir þess að halda því til haga hvað þeir séu gáfaðir og vel gefnir. Ég er gamall fíkill og læt það því eftir mér að svara dissinu en sleppi samt aukasetningunni enda myndi þessi maður ekki þekkja íróníu þó hún biti hann í rassgatið.
Bjánaleg textarýni ÓTG er jafn galin hvort sem hann fæst við harðar fréttir eða pistlaskrif þó það sé eðlismunur á þessu. Hann hatar það í báðum tilfellum ekkert að slíta vel valdar setningar úr samhengi og búa til samsæriskenningar um hvað gengur á í sjúkum huga þeirra blaða- og fréttamanna sem hann tekur á beinið hverju sinni. Nú hljóta að vera einhver áhöld um það hversu mikið ídjót gaurinn er en hann er betur til þess fallinn að þusa yfir fréttatexta þar sem stílbrögð eiga ekki heima þar og eiga því varla að flækjast fyrir honum. Leshátturinn sem hann færir beint yfir á persónubundnar skoðanir og pistla verður þó fyrst pínlegur þegar hann reynir að fá fram orsakasamhengi í geðstirðleika mínum og stelpnanna sem skrifa Stuðið á móti mér. Auðvitað erum við stundum að tuða (eins og hann alltaf) og þetta er allt svo meinlaust að það ætti enginn að finna sig knúinn til að stytta sér aldur eftir lesturinn en oftar en ekki býr eitthvað að baki og hvað mig varðar þá er ég miklu betri penni en svo að meðalgreindur maður eins og ÓTG á að skilja mig og geta lesið milli línanna, nema hann vilji það ekki.


| 16:58 |
komment

Heyr heyr, allir sem pirra ÓTG eru mínir menn. Keep it up!

Nr. 1 | Gunnar | 27.06.2005 | 22:18:58 | [+] |

Ég sem var búin að skrifa í huganum næsta sms pistill um hversu mikið ég dái fólk sem þorir að gera grín af sjálfu sér á opinberum vettvangi og hvað sjálfshæðni er fágætt en brilljant form þjóðfélagsgagnrýni... en jæja, ég held þá bara áfram að fýlupokast í einhverju öðru...

Nr. 2 | Svanborg | 28.06.2005 | 18:18:13 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff