»  off record  »  Six degrees of separation
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Six degrees of separation
Laugardagur, 11. júní 2005

Leoncie6h.gifÞegar ég ákvað í ládeyðiskasti í vor að loka þessari fokkins síðu henti ég út öllum tenglum nema á fávitana á Málefnunum, hliðstæður þeirra á Press.is, rassabloggið, póstinn minn og vísi.is (var viss um að Gunnar Smári ræki mig ef ég úthýsti veffront 365). Þá hélt ég Hróknum að sjálfsögðu inni ásamt Agli Helgasyni sem ég hef umtalsvert álit á og Imdb sem ég nota talsvert þó ég sé með þann gagnagrunn meira og minna vistaðan í hausnum á mér.

Skjallbandalagið fékk að fjúka eins og það lagði sig enda er það meira og minna dautt og úr sér gengið. Sá ekki ástæðu til að halda neinum þar inni nema skólasystur minni og sambýliskonu sem ég sé ekki sólina fyrir.
Þar sem ég er aftur orðinn hressa lessan og í þvílíku banastuði hef ég ákveðið að endurnýja og uppfæra tenglasöfnin þó það sé ekki nema bara sjálfum mér til hægðarauka að geta stokkið beint af Binginu yfir á þá vefi sem ég les reglu- eða óreglulega.
Ég sakna þess að hafa ekki Tóta Leifs og Tótu pönk á sínum stað og þau eru efst á blaði yfir þá sem ég hafði aldrei átt að farga, ásamt Ingókrúttinu, Betu rokk og Dr. Gunna. Helstu nýliðarnir eru óviðjafnanleg mágkona mín, Kryssa hryssa, minn gamli fjandvinur Bitringur og Arnór Ingi sem er með efnilegri bíórýnum þessa lands.
Ég komst að því að hann bloggar þegar hann kommentaði hjá mér um daginn. Ég hitti hann síðast þegar hann var smá tittur og ég bauð honum á forsýningu á fyrstu Harry Potter myndinni en hann er greinilega orðinn fullmótaður bíónörd þó hann hafi rétt verið að klára skyldunámið. Drengurinn er vel lesinn í myndasögum og enn betur séður og það yljar manni um hjartaræturnar að sjá að ungt fólk áttar sig á snilligáfu Mickey Rourke. Þar fyrir utan er ekki hægt annað en taka ofan fyrir ungmenni sem kvótar í Constantine á síðunni sinni. Uppáhaldssetningin mín úr þeirri annars gölluðu mynd snýst samt um Guð sem er eins og krakki með maurabú og hefur engan áhuga á sköpunarverki sínu.
Kommarinir Sverrir Jakobsson, Stefán Páls og Óli Gneisti eru allir glöggir og greindir þó Sverrir sé áberandi fremstur meðal jafningja í Kaninkukommúnunni, aðallega vegna þess að hann er að skora feitt þessi dægrin með djúpum skilningi á Star Wars. Allir þessir og miklu fleiri eru í náðinni hérna og verða hér með þess vafasama heiðurs aðnjótandi að ég viðurkenni að ég lesi þá.

Annars skoða ég aldrei blogg af því það er svo hallærislegt.


| 15:13 |
komment

Bleesaður.
Sagði sponsorin þinn þér að setja mig á listann? Af hverju er annars filter á heimasíðuna mína sem bannar mér að psota með réttum link? Sagði helvítið hann Smári mágur þér að gera það?

Annars er gaman að sjá að þú blómstrar og ert með góða konu. Alltaf að springa úr hlátri á
öllum myndum.

Nr. 1 | Þórarinn Leifsson | 13.06.2005 | 14:02:36 | [+] |

ég man nú þegar þú sagðir mér að það væru bara asnar sem brostu!!!!!!!! :o)

Nr. 2 | óli | 16.06.2005 | 15:24:19 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff