Það eru 5000 IP tölur á svarta listanum hjá mér en samt geri ég ekki annað en að eyða út spammi á kommentunum ef ég hætti að blogga þá verður það ekki vegna þess að blogg er að verða jafn súrt og Zippó í lúkunum á aumingja heldur út af andskotans kæfunni.
Ég er byrjaður að skrifa aftur um myndasögur og þar sem ég er loksins kominn í frí get ég tekið rispu. Birti That Yellow Bastard í Fréttablaðinu um daginn og spái því að Adventures in the Rifle Brigade, V for Vendetta, Ultimate Fantastic Four, Batman: Year One, Arkham Asylum og We 3 fylgi í kjölfarið.
Sin City er auðvitað mál málanna í sumar og eftir að hafa séð Episode III, Batman Begins (4 stjörnu stykki) og Sin City tvisvar tel ég óhætt að fullyrða að Sin City verður besta mynd ársins. Þetta verður ekki toppað fyrr en Rodriguez kemur með Sin City 2 og 3. Annars hvílir Star Wars svo þungt á mér þessa dagana að stóra Star Wars færslan sem hefur verið að gerjast í hausnum á mér í tvo mánuði verður birt í sex hlutum. Við munum að sjálfsögðu byrja á IV: Mögen die Macht mit euch sein á næstu dögum.
Það hefur einnig staðið til hjá mér um nokkurt skeið að drulla yfir Blaðið. Missið ekki af þeim dómi sem mun jafnast á við diss Jónasar Hallgrímssonar á Tristransrímur og þessa snilld.
Frídaginn í gær notaði ég til að horfa á Miami Vice og þræða bókabúðir, en það er besta þerapía sem ég þekki. Keypti næstum bókina Michael Moore is að stupid, fat, white man (eða eitthvað álíka) í Eymundsson. Ég fíla Moore og flest það sem hann segir í ræmur en myndi samt ekki treysta þessum spikaða popúlista frekar en varaformanni Samfylkingarinnar sem er annað hvort spilltur eða í vondum félagsskap nema auðvitað að báðir kostir séu réttir. Fór líka í Mál og menningu og Bókavörðuna hans Braga þar sem Robert James Fischer var ekki. Endaði á fyrirlestri um Batman hjá Pétri í Nexus en nennti ekki að labba í Bóksölu stúdenta.
Þangað hef ég ekki komið í a.m.k. 2 ár en verð væntanlega tíðari gestur þar með haustinu þar sem ég og sambýliskona mín erum líka orðin skólasystkin eftir að við skráðum okkur í HÍ. Ég er enn laus við allan akademískan metnað og er að fara að skemmta mér og tek þess vegna kúrsa í kynjafræði og kvikmyndafræði. Þetta verður samt sjálfsagt til þess að ég tékka á hversu mikið af bókmenntafræðinni hefur fyrnst og klára svo BA ritgerðina. Er kominn með fína kenningu og er byrjaður að afla heimilda. Húah! Djöfuls stuð. Nám snýst ekki um einingar og gráður heldur að halda sér ferskum og berjast gegn stöðnun.
Magnað samt að ég er ekki búinn að vera í fríi í nema tæpa viku þegar það rifjast upp fyrir mér hversu dýrmætum tíma, gáfum og hæfileikum ég er að sóa í vinnunni. Annars átti þessi bæjarrölts saga ekki að enda sem sálgreining en ég gerði merkilega uppgötvun á bókabúða- og kaffihúsaröltinu. Sá fullt af fólki að lepja bjór fyrir klukkan 14, á kaffihúsum og förnum vegi. Rak líka augun í ræfilslegan mann sem fór inn í íbúð við Hverfisgötu með ÁTVR poka fullan af bjór. Varð abbó í split second en fékk svo what alcoholics refer to as a moment of clarity:
Ég hef aldrei séð eftir þeim peningum sem ég eyddi í drykkju enda reiknast mér mjög rúmlega og gróflega til að ég hafi ekki eytt nema um 2.160.000 í áfengi á 12 ára drykkjuferlinum. Þetta þýðir þó alls ekki að ég hafi verið hófdrykkjumaður þar sem fáir hafa kunnað listina að drekka frítt betur en ég og Þórbergur. Er klár á að ég hafi aldrei eytt meira en 15.000 kalli á mánuði. Félagar mínir í meðferðinni áætluðu flestir að neyslan hefði kostað þá einhverja tugi milljóna. Flestir áttu að vísu lengri feril en ég og voru í harðari og dýrari efnum. Þessar tvær millur eru bygons. Það sem ég sé eftir er allur tíminn og orkan sem ég setti í þessa helvítis vitleysu en neysla tóbaks, áfengis og að ég tali ekki um ólöglegra vímuefna er fánýt iðja sem mér sýnist í flestum tilfellum loða við heimskt fólk, illa gefið, heft í þroska og ómenntað. Meðal fíkill uppfyllir ekki endilega öll þessi skilyrði en alveg örugglega fleiri en eitt eða tvö.
Guð gefi mér hroka til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt. Mannfyrirlitningu til að þola það og vit til að greina hafrana frá sauðunum.
Sumt breytist sem betur fer aldrei og meirihluti þeirra sem tjá sig á Málefnin.com er enn skipaður örvitum og erkifíflum. Fannst bara rétt að minna á þetta.
Erkitöffarinn Robson Greene er í sjónvarpinu. Best væri ef þetta væri Touching Evil þar sem hann leikur Creegan en Wire in the Blood er OK.
Fucking hell! A line from the play!
| 22:01 |