»  off record  »  Viðreisn enn á ný
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Viðreisn enn á ný
Mánudagur, 13. júní 2005

Í dag eru 34 ár liðin frá falli Viðreisnarstjórnarinnar og næstum ævilöng stjórnarseta Framsóknarflokksins hófst þannig að í sögulegu samhengi hefði verið smart hjá Halldóri Ásgrímssyni að segja af sér á blaðamannafundinum í dag í stað þess að skúbba bara hreina sakarvottorðinu frá Renda.
Finnur Ingólfsson gafst einu sinni upp á ágangi fjölmiðla og aðgangshörku þeirra við fjölskyldu sína. Halldóri leiðist þetta sama þóf en djöflast samt áfram frekar en að taka Finnsleiðina út; setjast á friðarstól í Seðlabankanum og gerast milljóner.

Sjálfur er ég bara annars nokkuð hress og afþakka blóm og kransa.


| 21:32 |
komment

Hvers vegna er yfirskriftin Viðreisn enn á ný? Mér dettur þá í hug Sjálfstæðisflokkur+Samfylking. Býr það ekki að baki?

Nr. 1 | ábs | 14.06.2005 | 16:09:45 | [+] |

Iss þú lest í þetta á allt of pólitískum forsendum. Mér gæti ekki verið meira sama um hvernig ríkisstjórnir púslast saman. Þessi síða hverfist fyrst og fremst um sjálfan mig og þar sem ég er jafn gamall falli viðreisnar upp á dag (http://www.badabing.is/eldra/arc/001797.html) er hér átt við enn eina persónulega viðreisn mína.

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 14.06.2005 | 21:02:43 | [+] |

Ha Toggi að tala svona um foringjan!! Ertu ekki af rosa framsóknar ætt maður?? Fékstu ekki flokkskýrteinið í skírnargjöf!! :o)

Nr. 3 | óli | 16.06.2005 | 15:19:20 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff