off record júlí 2005
a long time ago...
|
 |
Amber Pie Uncut
Miðvikudagur, 27. júlí 2005
Fór og hitti þennan geggjaða Jim Rose í gær. Það eru auðvitað takmörk fyrir því hvað ég læt á prent þannig að það sem endaði á klippigólfinu kemur hér. Þeir sem hafa lesið DV í dag eða horft á Kvöldþátt Gumma á Sirkus í gær ættu að mestu að geta sleppt því að lesa þetta. Jim ætlar að koma með sitt innlegg í kynjabaráttuna með því að skera úr um það hvort er sterkara píkan eða typpið. Þetta verður gert með reipitogi. Amber er með hring í píkunni og í hana verður fest keðja en á hinum endanum verður drjólinn á einu fríkinu (Lifto). Og svo verður bara togað.
Jim sagði mér einnig frá því að einn gaurinn í sirkusnum hefði misst typpið. Það bar þannig að að þau voru í myndatöku og þar dró hann innkaupakörfu með limnum. Ekki vildi betur til en svo að hann datt aftur fyrir sig, út af sviðinu, en karfan og typpið urðu eftir. Það var svo tekin húð af rassinum á honum og böllurinn græddur aftur á sinn stað. Þetta þýðir að því er Jim segir að í hvert skipti sem hann klórar sér í rassinum fái hann standpínu. "No matter what. His penis always gets a piece of ass!"
Eins og ég hef þegar greint frá í Fréttablaðinu verður haug af smokkum dreift yfir áhorfendur á Broadway og sá sem fær bláa smokkinn má eyða klukkustund með Amber baksviðs. Ég spurði Jim hvað Amber myndi bjóða uppá og datt helst í hug að viðkomandi fengi að ræða við hana um bókmenntir og heimsmálin. "If you want you can do that. Some like anal, soma like vaginal and some like to be whipped." Ekki orð um það meir.
Jim segist vera einn besti pókerspilari í Bandaríkjunum og hann eyðir fjórum mánuðum á ári í Las Vegas. "Ég hef ágætis tekjur upp úr þessu og ég vann til dæmis 11.000 dollara af Ben Affleck ekki alls fyrir löngu. Hann er ekki góður tapari og svipurinn á honum þegar hann sá spilin mín var eins og hann hefði fundið fingur fljótandi í Kókinu sínu. Ég hef líka náð 6.000 dollurum af Spider Man, honum Tobey Maguire."
Hann spurði hvort menn spiluðu póker á Íslandi sagði ég honum að það væri bannað með lögum. Það mætti þó finna underground spilavíti í Reykjavík en það væri leyndó. "Secret! How can you keep anaything secret in a country of 300.000 people." Veit það ekki.
Myndatakan var auðvitað kapítuli út af fyrir sig. Ég afþakkaði brjóst á myndinni fyrir Fréttablaðið en DV þáði tútturnar á Amber. Fyrst var myndin fyrir "the conservative paper" tekin og Amber lét sér nægja að kokgleypa mjög, mjög langa blöðru. Rose vildi að hin drottningin, BB, sýndi aðeins í rassinn á sér og togaði stuttbuxurnar niður þegar honum fannst hún ekki sýna nógu mikið hold. Þegar það kom að DV vippaði Amber sér úr að ofan og þá spurði Jim hvort blaðið þyldi líka typpi.
Síðan gyrti hann niður um sig og sagðist ætla að "do the hamburger." Svo bisaði hann eitthvað við klofið á sér drykklanga stund og beindi svo krömdu slátrinu að linsunni.
|
|
 |
 |
Vanilla Sky
Þriðjudagur, 26. júlí 2005
Gremjan er farin, hatrið gufað upp og ég finn hvorki reiðina mína né vínlöngunina. Skrítið hvað það þarf lítið til að snúa öllu á hvolf. Ég er samt alltaf að komast betur og betur að því að það er tilgangslaust að ákveða að eitthvað eigi að vera svona eða hinsegin eða að maður geti kortlagt líf sitt langt fram í tímann. Það gerist alltaf eitthvað allt annað. Ed Bunker er dauður. Ætli ég verði þá ekki að lesa ævisöguna hans sem ég keypti á 1000 kall í Kolaportinu. Hún er árituð en ég tek því með mátulegum fyrirvara að kallinn hafi sjálfur stýrt penna. Kolaportið er risastór lager af sviknum vörum. En mikið skelfing er ég alltaf svag fyrir utangarðsmönnum sem nota reynslu sína til að segja eitthvað og ná til fjöldans. Bunker og Ellroy eru ekta.
Hitti Jim Rose áðan og allt hans fríkaða gengi. Klámstjarnan Amber Pie fór úr að ofan og Jim að neðan. Saga að segja frá þessu.
|
|
 |
 |
Heimur versnandi fer
Mánudagur, 25. júlí 2005
Allar löggur í London eru komnar með 00- forskeytið fyrir framan kennitölur sínar og hafa nú leyfi til að drepa. Sandnegrar eru efstir á dauðalistanum en ég myndi ekki láta sjá mig á götum stórborgarinnar í kanaúlpunni minni með Jurassic Park III bakpokann minn. Fasistar hafa líka náð völdum í blokkinni minni og ætla að reka hana í anda sumarbúða Hitlersæskunnar. Svartir hvolpar gelta að mér og glefsa í skálmarnar. Ég er því farinn að hlusta óhóflega á The Doors og Rammstein sem veit ekki á gott. Hef þurft að sækja styrk í trúna og er farinn að ganga aftur með gamla Þórslíkneskið um hálsinn. KR heldur áfram að tapa og þegar ég stóð frammi fyrir því að gera grein fyrir atkvæði mínu í næstu borgarstjórnarkosningum í Gallup símakönnun vissi ég ekki fyrr en ég hafði gefið Sjálfstæðisflokknum atkvæði mitt og sagt Vilhjálm Þ. líklegastan til að ná árangri í borginni. Það er af sem áður var en þetta er staðreynd. R-listinn verður að víkja með allt sitt spillta og valdagráðuga hyski. Vinstri menn hafa ekkert með völd að gera þó þeir séu ekki jafn ömurlegir og framsóknarmenn en það er ekkert nýtt í þessu og Orwell gerði þessu fullnægjandi skil í Animal Farm. Hann sá líka fyrir líf mitt í Nóatúninu í 1984.
Myrkraöflunum vex stöðugt ásmeginn á meðan ég og mínir erum á undanhaldi. Kaffi með byltingarforingja á eftir. Ég spái því að blóðið muni renna fljótlega. Þegar maður er innikróaður er ofbeldi eina lausnin.
Five to One Beibí
|
|
 |
 |
Haldið til haga
Mánudagur, 25. júlí 2005
Hafði ekki gert mér grein fyrir að það liðu þrjú ár á milli sísona en það er greinilegur munur á framleiðslunni á milli árganga Þetta eru góðir þættir en styrkurinn liggur fyrst og fremst í textanum. Umgjörð og frágangur þættu sjálfsagt ekki spennandi í dag. Það bregður þó fyrir fagmannlegum töktum með myndavélina og í lýsingu. Ég fíla samt ekki byssuskotin og dömurnar í kynningunni. Það er stílbrot að tefla Marlowe fram sem einhverjum James Bond. Þá er einnig asnalegt að löggan Violet (leikinn af Geira á Maxim´s) sé föst aukapersóna og sama má segja um Annie Riordan. Marlowe var ekki beint að bindast fólki traustum og langvarandi félagslegum böndum. Það er ekki okkar stíll. Þetta er samt aukaatriði enda er Marlowe í þessum þáttum ekki Marlowe.
1st Season 1983
1- 1 16 Apr 83 The Pencil
1- 2 23 Apr 83 The King in Yellow
1- 3 30 Apr 83 Finger Man
1- 4 7 May 83 Nevada Gas
1- 5 14 May 83 Smart Aleck Kill
2nd Season 1986
2- 1 27 Apr 86 Blackmailers Don't Shoot
2- 2 4 May 86 Spanish Blood
2- 3 11 May 86 Pickup on Noon Street
2- 4 18 May 86 Guns at Cyrano's
2- 5 25 May 86 Trouble Is My Business
2- 6 3 Jun 86 Red Wind
|
|
 |
 |
Eureka!
Föstudagur, 22. júlí 2005
Ég er búinn að finna lausn á frjókornavandanum sem toppar öll lyf. Mér sárnaði samt svolítið þegar DV birti þessa mynd af mér og sagði að þessi ungi Star Wars nörd skyti Ewan McGregor skelk í bringu. Ég er gamall.
Annars sá ég McGregor í The Island í gær. Prýðileg popp&kók sumarræma. Michael Bay hatar það ekkert að velta bílum, sprengja hús og drepa fólk en hann gerir þetta allt með miklum bravúr í þessari mynd sem leynir á sér. Þrátt fyrir nafnið og að hún fjalli um klónun á hún samt lítið sameiginlegt með The Island of Dr. Moreau og er ekki drasl.
The Amityville Horror sleppur líka fyrir horn. Hún nýtur þess líka í stjörnugjöfinni að mér finnst hún miklu betri en frummyndin sem ég þoli ekki. Misminnti í gær og sagði hana gerða 1977 í Fréttablaðinu. Ég ætti eiginlega að reka mig. Þetta er jafn alvarlegt og "til læks". Skeikaði samt bara 2 árum. Hún er ´79 módel.
Hér eru gamlar hryllingspælingar úr bókmenntafræðinni. Draugahús og Uppvakningar.
Já. Polanski var að vinna dómsmál. Það er gott. Held alltaf með honum. Minnir að þessi grein mín um hann sé skemmtileg þó ég hafi ekki komið þeirri geggjuðu kenningu að að Manson morðin hafi verið framin til að refsa Polanski fyrir að láta erkifíflið Anton LaVey hjá Satanskirkjunni í Chicago leika Djöfullinn í Rosemary´s Baby. Andskotanum sjálfum og alvöru Satanistum fannst víst þessi djóker ekkert spes.
Djöfull verða þessar helvítis, andskotans færslur alltaf langar. Einfaldur minnismiði verður alltaf að einhverju andskotans stream of consciousness. Ég myndi ekki lesa þetta þó ég fengi borgað fyrir það. Fyrirsögnin sem vísar í Arkímedes kallar þannig til dæmis óhjákvæmilega fram mynd af stærðfræðingnum að teikna hringi í sandinn á strönd Sýrakúsu þar sem rómveski hermaðurinn kom að og drap hann. Ein sagan segir að síðustu orð Arkímedasar hafi verið "snertu ekki hringana mína" (á Latínu auðvitað). Þetta kallar svo fram í hugann lag með Belindu Carlisle:
Sundown all around
Walking thru the summer's end
Waves crash baby, don't look back
I won't walk away again
Oh, baby, anywhere you go,
We are bound together
I begin, baby, where you end
Some things are forever !
Circle in the sand
'Round and 'round
Never ending love is what we've found
And you complete the heart of me
Our love is all we need
Circle in the sand
Lagið vekur upp minningar um Madonnu sem fríkaði út í In Bed With Madonna af því að ein af bakraddasöngkonunum hennar sönglaði einmitt þetta lag. Madonna vekur svo upp minningar um Penthouse með henni á forsíðunni og allsberri, órakaðri undir höndunum, inni í blaðinu þannig að maður veit ekki af fyrr en maður er byrjaður að fróa sér sem vekur upp hugsanir um Guð og ferminguna og sektarkennd yfir því að maður sé að gera eitthvað ljótt sem aftur kveikir hugsanir um Reykjavíkurborg sem er ljót sem minnir mann á R-listann af því að það er honum að kenna og þá fær maður aftur móral nú yfir því að vera kannski orðinn sjálfstæðismaður sem vekur upp löngun til þess að skera af sér hægri höndina en þá er maður orðinn svangur og étur túnfisk upp úr dósinni sem minnir mann á hversu glataður maður er og þá kveikir maður á sjónvarpinu til þess að reyna að gleyma því og ..................
|
|
 |
 |
Ótímabærar sögur af andláti
Fimmtudagur, 21. júlí 2005
Það hefur rignt yfir mig kvörtunum yfir að ég sé búinn að skemma nýju Harry Potter bókina fyrir fjölda fólks. Þetta er rangt. Ég var einmitt að auðga hana og gera lesturinn skemmtilegri með því að ljúga því að Hermóína myndi drepast. Og það er ekki Hagrid sem missir lappirnar heldur Anakin en það er önnur saga. Hermína er auðvitað búin að vinna immjúnití í þessum survivor leik sem Rowling býr til fyrir útkomu hverrar bókar þar sem hún mun enda með Draco (eins og ÁJ hefur reiknað út með hefðbundnum frásagnarformúlum).
Ég ætlaði nú samt fyrst að kjafta því hver dræpist en Ármann gerði það svo skemmtilega á bloggi bróður síns að hann stal glæpnum. Hefði maður ætlað að skvíla eftir það hefði maður endað í sporum Chuck Berry þegar hann gekk á svið á eftir Jerry Lee Lewis sem skildi píanóið eftir í björtu báli og sagði "toppaðu þetta niggari."
Þannig að ég endurtók í staðinn djókinn sem við Jakob lékum ítrekað á Kollu Bergþórs áður en hún náði að lesa Fönixregluna en við lákum því reglulega í hana að það væri "stelpan" sem dræpist. Við uppskárum alltaf mikil heróp og formælingar sem var ekki fair þar sem við vorum bara að auka lestrarnautnina hjá henni, hugsið ykkur bara léttinn þegar Hermíóna lifði og það var bara guðfaðirinn sem kyngdi hinum stóra, græna banana dauðans.
Annars skil ég ekki þessi læti. Það var búið að segja mér að það væri Gary Oldman sem dræpist í síðustu bók en ég skemmti mér ágætlega yfir henni. Ég er heldur ekki búinn að fá nýju bókina frá Amazon en lét strax segja mér hver dræpist núna. Sú vitneskja breytir engu. Öll heimsbyggðin sá Titanic í það minnsta í tvígang og grét, samt vissu allir að dallurinn myndi sökkva og sama er að segja um Star Wars. Það veit hver einasti kjaftur að Rasssakinn er Vader en samt missa nerdir þvag í bíó.
Það skiptir nefnilega ekki máli hvað gerist, heldur hvernig.
|
|
 |
 |
Spoiler
Þriðjudagur, 19. júlí 2005
Ó já. Á meðan ég man. Það er Hermoine sem deyr. Hagrid sleppur með skrekkinn en missir báða fætur.
|
|
 |
 |
Fornar ástir
Þriðjudagur, 19. júlí 2005
Er búinn að vera að horfa á unorþodox Bond myndina Never Say Never Again í áföngum undanfarið. Irvin Kershner leikstýrði henni næst á eftir Empire Strikes Back sem gerir hana óneitanlega mjög áhugaverða.
Connery er helvíti brattur þó lítið hafi verið gert til að dylja aldur
hans. Fannst þessi mynd a.m.k. betri en Octopussy með Roger Moore en þær voru sýndar fyrir sömu jólin í bíó. Connery í Bíóhöllinni en Moore í Tónabíó. Moore var fyrsti Bondinn minn en Connery varð sá eini sanni strax eftir að ég sá Goldfinger á vídjó
NeverSay Never Again er samt ekkert spes, slagsmálaatriði stirð og alveg glatað þegar Bond og Largo keppa um heimsyfirráð í tölvuspili. Mátulega eitís. Þetta er auðvitað allt byggt á Thunderball enda er hún eina Bond bókin sem vafi lék á hver ætti kvikmyndaréttinn.
Klaus Maria Brandauer, sá ágæti leikari er líka allt of góðlegur fyrir Largo en Max Von Sydow smellpassar í hlutverk Blofeld. Í minningunni er Blofeldinn sem aldrei sést í From Russia With Love líka Sydow. Svíadjöfullinn er Blofeld.
Kim Basinger er voða sæt Domino en er litlaus og leiðinleg. Hún átti samt alveg skilið að ná lengra og komast upp í hjá Mickey Rourke í 91/2 Weeks en hvernig ég gat á sínum tíma verið skotinn í Barbara Carrera er mér hulin ráðgáta.
Morðkvendið Fatima Blush er bjánaleg persóna og Carrera er hræðileg leikkona. Ótrúlega phony. Hún er samt enn smá sexí, hún má eiga það en að finnast hún æði? Komon.
Rowan Atkinson er líka asnalegur í þessari mynd sem verður samt alltaf skemmtilegt utangarðsfyrirbæri í Bondfræðunum.
Meira um Barböru
|
|
 |
 |
Eitur í beinum
Þriðjudagur, 19. júlí 2005
... eða Ljóðahorn öllu heldur
Ég þoli ekki tónleika og því síður tónleikaútgáfur á geisladiskum. Einna helst að ég geti hlustað á konsertdiska með The Doors. Drullaðist samt á Duran Duran og nú langar mig allt í enu á Alice Cooper. Hvað er að? Poison
Your cruel device
Your blood like ice
One look could kill
My pain, your thrill
I want to love you, but I better not touch (Don't touch)
I want to hold you but my senses tell me to stop
I want to kiss you but I want it too much (Too much)
I want to taste you but your lips are venomous poison
You're poison runnin'thru my veins
You're poison, I don't want to break these chains
Your mouth, so hot
Your web, I'm caught
Your skin, so wet
Black lace on sweat
I hear you calling and it's needles and pins (And pins)
I want to hurt you just to hear you screaming my name
Don't want to touch you but you're under my skin (Deep in)
I want to kiss you but your lips are venomous poison
You're poison runnin'thru my veins
You're poison, I don't want to break these chains
Poison
One look could kill
My pain, your thrill
I want to love you, but I better not touch (Don't touch)
I want to hold you but my senses tell me to stop
I want to kiss you but I want it too much (Too much)
I want to taste you but your lips are venomous poison
You're poison runnin'thru my veins
You're poison, I don't want to break these chains
Poison
I want to love you, but I better not touch (Don't touch)
I want to hold you but my senses tell me to stop
I want to kiss you but I want it too much (Too much)
I want to taste you but your lips are venomous poison, yeah
I don't want to break these chains Poison, oh no
Runnin'deep inside my veins, Burnin'deep inside my veins
It's poison I don't want to break these chains
|
|
 |
 |
I am the Lizard King
Þriðjudagur, 19. júlí 2005
... and I can do anything.
I can make the earth stop in its tracks
I made the blue cars go away
Nei, djók. En mikið skelfing er gott að leyfa stundum hatrinu og reiðinni að yfirtaka hverja taug, hverja hugsun.... það er ekki hægt að vera æðrulaus Jedi all the fucking time þó prógrammið ætlist til þess. You don´t know the power of the dark side en Leðurblökudjúsinn er samt enn í flöskunni og flaskan hjá Bitringi. All those moments will be lost in time, like tears in rain. Time to die.
|
|
 |
 |
From Hell
Mánudagur, 18. júlí 2005
Það er bannað að fjalla um Málefnin.com hér á BadaBing! og ég hef aldrei lagst svo lágt áður að víkja einu einasta orði að því arma hyski sem skrifar þjóðarsálarþanka sína á vefinn.
Það hefur samt verið óvenju gaman að fylgjast með svaðilförum tveggja aðalvitleysinganna sem sprottið hafa upp úr þessari rotþró þvælast um á Press.is þar sem Jakob vinur minn endist ótrúlega við svara þeim Kela og Gmaríu sem er án efa vitlausasti Málverjinn og væri það jafnvel þótt Keli blandaði sér enn í umræðuna þar. Fleiri snjallir pennar, PÁÁ og Friðrik Þór, hafa hætt sér út á sama forað og Jakob og sálgreint málverjaeðjóðin snaggaralega. En eins og heimskum hættir oft til þá svara málverjarnir allri gagnrýni á þann veg að blaðamennirnir séu hrokafullir og hræddir við málverjana sem eru í eigin huga orðnir fimmta valdið. My ass. Verð samt að minna Jakob minn á hið fornkveðna að það að rífast á internetinu er eins og að keppa á Ólympíuleikum fatlaðra, jafnvel þótt þú vinnir þá ertu þroskaheftur.
En ég finn mig semsagt tilneyddan til að ræða Málefnin.com hér í fyrsta sinn vegna þess að ég rambaði nýlega á viskukorn á þessum vef sem alla jafna er hafsjór af illa skrifaðri og enn verr hugsaðri meðalmennsku:
Annars er það nú með Framsókn að manni grunar að þeir líkt og rottur, kakkalakkar og Keith Richards munu lifa af kjarnorkustyrjöld.
Þetta segir einhver Calahan á Málefnunum og hlýtur hreinlega að vera skyldur Harry þetta hittir nefnilega beint í mark.
Ég drullaðist til að skrifa loks um Adventures in the Rifle Brigade. Skemmtilegt stöff.
Eins og aðrir með eitthvert vit í kollinum fíla ég Silvíu Nótt og verð því að benda á þetta.
Blandaði mér í andskotans Snoop vitleysuna í Stuðinu og ver að sjálfsögðu málfrelsið. Tókst líka að blanda Michel Houllebecq í þetta sem mér finnst helvíti gott enda hef ég ekki staðið mig sem skyldi í að halda snilli þessa fúla Frakka á lofti. Skrifaði einu sinni þessa líka þrælgóðu grein um Öreindirnar á Bókavefinn hans Hrafns á Strikinu. Krummi gaf mér bókina í jólagjöf en þetta er eina bókin sem ég hef lesið á undanförnum árum sem ég get hugsað mér að lesa aftur. Sin City bækurnar ekki meðtaldar, obviously!
Svo er ég byrjaður að skrifa aftur um sjónvarp. False move enda vart hægt að hugsa sér verra umfjöllunarefni auk þess sem mér hefur í gegnum tíðina þótt sjónvarpsrýnar frekar leiðinlegir.
Fleira var það ekki að sinni en ég vil eindregið hvetja þá sem mér er illa við til að éta skít.
|
|
 |
 |
Graskomplexinn
Mánudagur, 18. júlí 2005
Helvítis oðnæmið er að drepa mig, sérstaklega augnkláðinn. Hefur engum dottið í hug að kanna það hvort Ödípus hafi ekki þjáðst af frjókornaofnæmi og hafi þess vegna rifið úr sér augun? Ég held að þessi kenning haldi alveg vatni þó hún skjóti Freud um leið í kaf.
Hólmganga
Laugardagur, 16. júlí 2005
Þegar á Hólminn er komið fær Þóra sér bjór. Hvað ég geri er óljósara en öngvan fæ ég bjórinn, svo mikið er víst.
En fyrir þá sem hafa mikinn áhuga á alkóhólisma mínum skal þess getið að ég hugsa mikið um áfengi þessa dagana og þá ekki síst rauðvín og þau dásamlegu undur sem það getur gert fyrir mannsandann í réttu magni. En vandamálið er því miður þetta með magnið, sjáiði til.
|
|
 |
 |
Where have all the good men gone
Föstudagur, 15. júlí 2005

... and where are all the gods?
Er að lesa fyrstu Sin City bókina, The Hard Goodbye, enn einu sinni. Slagkrafturinn í bíómyndinni er slíkur að nú heyri ég rödd Mickey Rourke í hausnun á mér þegar ég les mónólóga Marvs.
Marv er frábær týpa og það er synd og skömm að mamma hans hafi ekki komist fyrir í myndinni. Samband mæðginanna gerir Marv enn margbrotnari.
Þóra og fleiri hafa bent mér á lúmskan pedófílinn sem leynist í myndinni en birtist í því að allar (leik)konur í Sin City eru kornungar en binda trúss sitt við sér eldri (leik)menn. Mikið til í þessu en eins og ég hef þegar bent á ætla ég ekki að láta pólitískan rétttrúnað né neitt annað skemma þessa mynd fyrir mér. Grófasta pedó dæmið í myndinni/bókinni er samband Hartigans og Nancyar. Hún er 19 í bókinni en Hartigan sjálfsagt að slaga í sjötugt. Aldursmunurinn á leikara og leikkonu er einnig mestur í þessu sambandi. Bruce Willis er 50 ára en Jessica Alba 24 ára. Kannski á mörkunum en er þetta ekki svipað og hjá Nælon stelpunni og hljóðmanninum og Jakob Stuðmanni og nýjustu gellunni hans?
Anyhu. Hartigan veldur mér vonbrigðum þegar hann fer í sleik við Nancy þar sem hann er faktískt eini alvöru góði gæinn í þessu og náskyldastur Marlowe. Dwight kemst líka nálægt en hann er morðingi og fórnarlamb tálkvenndis en slíkar fraukur bitu ekki á Marlowe. Frægt er þegar hann kastaði Carmen Sternwood nakinni á dyr í The Big Sleep (bókinni auðvitað) og sagðist verða óglatt af konum. Þetta er útúrdúr. Punkturinn er sá að hetja Chandlers hefði aldrei freistast til að slumma unga stúlku sem leitar verndar.
Var einmitt að klára Marlowe þáttinn Pick Up on Noon Street með Powers Boothe (Senator Roark í Sin City myndinni) og þar skýtur hann skjólshúsi yfir 18 ára stúlku á villigötum. Sú er leikinn af kornungri Robin Givens. Hann býður henni rúmið og býr um sig á sófanum en þegar hún gefur í skyn að hann megi koma upp fær hann sér viský sopa, dregur hattinn niður fyrir augu og fer að sofa. 100% herramaður og eini sanni riddari spilltu stórborgarinnar. Hinir eru allir aumingjar, nema Sam Spade. Hann er beisikklí illmenni en má eiga það að enginn hefur tæklað tálkvendi með meiri stæl, hvorki fyrr né síðar:
I hope they don't hang you, precious, by that sweet neck. Yes, angel, I'm gonna send you over. The chances are you'll get off with life. That means if you're a good girl, you'll be out in 20 years. I'll be waiting for you. If they hang you, I'll always remember you.
Svo öllu sé haldið til haga skrifaði Chandler Pick Up on Noon Street smásöguna áður en Marlowe var fullskapaður þannig að þar heitir spæjarinn Johnny Dalmas. Sama er að segja um alla hina þættina í Marlowe seríunni með Boothe. Þeir byggja allir á Marlowe lausum smásögum þar sem aðalhetjurnar heita hinum ýmsu nöfnum en hinn raunverulegi samnefnari er sá einni sanni, Philip Marlowe.
Tölfræði:
Jaime King (Goldie/Wendy) 26 ára +
Mickey Rourke (Marv) 49 ára = -23 ár.
Jessica Alba (Nancy) 24 ára +
Bruce Willis (Hartigan) 50 ára = -26 ár.
Rosario Dawson (Gail) 26 ára +
Clive Owen (Dwight) 41 árs = -15 ár.
Brittany Murphy (Shellie) 28 ára +
Clive Owen (Dwight) 41 árs = -13 ár.
Brittany Murphy (Shellie) 28 ára +
Benicio Del Toro (Jacky Boy) 38 ára = -10 ár.
Statistíkin er vissulega ekki góð en samkvæmt þessu er Benicio minnsti pedóinn.
|
|
 |
 |
Og drasl
Föstudagur, 15. júlí 2005
Þessi löngu hlé á milli færslna hafa aldrei þessu vant neitt með bloggleti eða sumardoða að gera heldur skrifast þetta beint á Og Vodafone sem er átakanlega slappt fjarskiptafyrirtæki.
Ég hef svo sem alltaf verið meðvitaður um að Og Vodafone (áður Íslandssími) er vont fyrirtæki, smekkfullt af vanhæfu liði bæði í röðum stjórnenda og tæknimanna. Þetta breytti því ekki að ég hef skipt við fyrirtækið frá stofnun þar er eingöngu um prinsipp ákvörðun að ræða. Síminn (áður Landssíminn) er skrímsli, ógeðslegt fyrirtæki, sem hélt Íslenskum símamarkaði í heljargreipum í 75 ár þannig að um leið og einokunin var rofin kom ekki annað til greina en að skipta við samkeppnisaðilann og sætta sig um leið við verri þjónustu.
Ég mun því halda mig við Og Vodafona þrátt fyrir að þar á bæ virðist vera skrúfað fyrir nettenginuna sem ég borga fyrir á slaginu 12 á miðnætti. En það er einmitt um það leyti sem ég hef tíma til að sinna Binginu. Og Vodafone hlýtur að reyna að halda netinu sínu uppi á næturnar svo maður þurfi ekki einu sinni að leiða hugann að því að færa sig yfir til ríkismonsters sem er á kafi í fjölmiðlarekstri og klámdreifingu.
|
|
 |
 |
Pour some pepper on me
Laugardagur, 09. júlí 2005
Sonur Framsóknarflokksins komst ekki í Hádegisútvarpið á Talstöinni í dag þar sem hann var upptekinn við eigin steggjun. Dórið droppaði við hjá mér og var mér til halds og trausts þegar Sirrý spákona mætti að tala um galdra, bæði ástar og svarta. Hún var helvíti mögnuð og ég var alveg að fíla lófaspánna sem hún gerði fyrir mig. Halldór botnaði hins vegar ekkert í því hvernig hún gat fengið það út að ég væri vinsæll, velliðinn, viðkvæmur og góður. Við töluðum mest um ástargaldra tengda kynlífi en ég fæ ekki betur séð en að viagra og smjörsýra hafi leyst galdrastafi, mulda köngla og hráka af hólmi. Hér er til dæmis einn góður úr Ástargöldrum:
HOLDRIS ÞEGAR HENTAR
Mala skal pipar með hunangi og bera á liminn.
Það er líklega sama hvernig pipar svo lengi sem hann er ekki chilli en annars minnir þessi galdur mig á hinn bráðskemmtilega Völsa þátt úr Flateyjarbók en einn af mínum skemmtilegri kennurum á sínum tíma, Helga Kress segir í Máttugum meyjum söguna af Völsa vera dæmi um "niðurlægingu karlmennskunnar og hins fallíska valds með kímni og grótesku myndmáli" í fornaldarsögum. Þarna segir frá heiðnu hyski sem geymir drjóla undan hesti í vafinn inn í líndúk með lauk og örðum grösum. Vingullinn er með öðrum orðum marineraður. Limurinn var svo tilbeðinn en með klúrum vísum var hægt að fá hann til að rísa.
Slátrið endaði svo í hundskjafti eftir að Ólafur Haraldsson konungur kastaði honum frá sér.
Jamm, kryddlegnir tillar eru hressir en við ykkur sem eruð á leið á djammið hef ég aðeins þetta að segja:
FYRIR STANSLAUS KYNMÖK
Mala skal fimmtíu litla furuköngla og bæta tveimur únsum af sætu víni og tveimur piparkornum og drekka svo.
|
|
 |
 |
Blood for blood and by the gallon
Föstudagur, 08. júlí 2005
Sin City er loksins komin í bíó. Ég ætla ekki að tjá mig frekar um þá mynd enda væri það eins og að flytja uglur til Aþenu eða bera vatn í bakkafullan læk. Þetta er tær snilld og ég þurfti að stytta lofsöng minn um hana í Fréttablaðinu verulega en friða samviskuna með því að birta DVD útgáfuna hér.
Fyrir aðdáendur góðra spennumynda, Mickey Rourke og film noir er Sin City sjónræn fullnæging og konfektkassi fyrir graða unglingspilta. Sá hana fyrst í Lúxus salnum í Smárabíói með nokkrum vel völdum nördum þann 1. apríl og aftur á forsýningu nokkrum vikum síðar. Hef samt beðið spenntur og fer á hana aftur um helgina.
Það eina sem mér finnst vanta í þessa mynd er samband Marvs við móður sína en eins og Rourke hefur bent á þurfti að stytta hans kafla til þess að koma hinum "tussunum" að. Marv og mamma verða samt örugglega í DVD útgáfunni en auk þess skilst mér að Rosario Dawson beri brjóstin á DVD disknum en þeir sem telja sig fá að sjá þær júllur í bíó verða sviknir.
Slengdi áhugasömum til hægðarauka í slatta af erlendum dómum inn undir liðnum "aðrir".
Persónulega er ég hrifnastur af hugmyndinni um að Sin City sé afkvæmi Daffy Duck og Raymonds Chandler.
Svo er það auðvitað mjög smart að eyrnamerkja Marv sem Terminator meets Beauty and the Beast.
Hér er svo dómsuppkvaðning vina okkar hjá EMPIRE.
|
|
 |
 |
Kennsl
Miðvikudagur, 06. júlí 2005
Aristóteles segir: "Kennsl eru, eins og nafnið ber með sér, í því fólgin að vanþekking víki fyrir þekkingu, og af því spretti vinátta eða óvinátta hjá fólki, sem á gæfu eða ógæfu í vændum." Þetta kemur fram í lykilriti Ara, Um skáldskaparlistina en kenningar Aristótelesar eru enn hryggsúlan í flestum Hollywwodkvikmyndum og í nafni meistarans lýsi ég því hér með yfir að flottustu kennslin í bíó í sumar eru í Batman Begins þegar Bruce Wayne gefur Rachel vísbendingu. Við vissum auðvitað öll að Anakin væri Vader þannig að Star Wars er ekki með.
It´s not who you are underneath. It´s what you do that defines you, eða með öðrum orðum: "Yes baby, I am the Batman".
Skemmtilegasta setning sem ég hef lengi séð í kvikmynd er hins vegar letruð á stuttermabol vonda trúðsins House of 1000 Corpses: If I´d want to listen to an asshole. I´d fart.
Á morgun eru 2 ár frá því að ég tékkaði mig inn á Teig þannig að í dag ætti að vera edrú dagur. Það voru óneitanlega kennsl þegar ég komst að því að ég væri alki og á þeirri studnu hvarflaði ekki að mér að ég ætti hamingju í vændum enda var FLÆKJUSTIG lífs míns frekar hátt en það gengur ágætlega að lækka það. Ég lærði þetta orð, "flækjustig", af Sveini Andra lögspekingi sem notaði það um mál skjólsæðings síns sem kann ekki að nota smokk og hefur því verið að greiða meðlag með barni sem hann á ekki í tíu ár. Verstur asskotinn nefnilega að móðirinn kunni ekki að telja og ruglaði bólfélagatali sínu og læknirinn sem gerði DNA prófið þekkir ekki litning frá rassgatinu á sér. Þetta er hátt flækjustig. Ég myndi ekki fara með mitt DNA til neins annars en Kára klára en ég myndi líka aldrei fá Svein Andra til að verja mig.
Flækjustig er álíka gott orð og gobbledygook og um það gilda sömi lögmál og hjá General Melchett I´m making a note of it because I intend to use it more in conversation.
|
|
 |
 |
Ljóðahorn
Sunnudagur, 03. júlí 2005
...og um leið svar við spurningu sem enginn hefur ansað Late Bar
There's a hole in the wall next to you
Things with legs are crawling through
Their madly searching for the door in your room
You're coming out, your coming down
There's an all night party in room 7609
(la-la-la late bar la la la la la la la late)
You can dance together all night, if you've got the time
(la-la-la late bar la la la la la la la late)
The bodies move like flies on the wall -
You want to run but there's no space at all
The dancers spinning in the mirror ball
You're coming out your going round
(chorus)
-
Just come to the late bar
Come, so fast
Drink..
I know what i'm talking about
I know what i'm doing
Ahh..
|
|
 |
 |
Kaþarsis
Föstudagur, 01. júlí 2005
Alveg er það með ólíkindum hversu hryllingsmyndagláp gerir mér gott andlega. Endurnærði mig í vikunni með House of 1000 Corpses eftir Rob Zombie. Þetta var nú meira fyndið en skerí en nóg af blóði og aflimunum samt. Hér er Texas Chainsaw stæld grimmt en húmorinn er miklu betri. Zombie er svo allur að verða meinstrím og við fáum væntanlega The Devil's Rejects í bíó enda er hún að raka saman dollurum.
Ég er enn að ná áttum eftir tilfinningauppnámið sem fylgdi Duran tónleikunum og eftir að hafa farið yfir málið með Hrafni er niðusraðan sú að ég hafi ekki þurft að vera fullur í gær heldur hafi tilfinningaleg bæling komið í veg fyrir að ég nyti tónleikanna í botn.
Extentend Night Version af tónleikagreininni.
|
|
 |
 |
Herslumunurinn
Föstudagur, 01. júlí 2005
Tónleikarnir voru frábærir. Die Duranies eru ótrúlega seigir og í toppformi. Eiginlega alveg eins og þeir voru fyrir tuttugu árum en sjitt hvað mig langaði til að vera fullur þarna. Gat alveg dansað, klappað og sungið með en það var þrennt sem vantaði upp á til þess að ég næði að fá allt sem ég vildi út úr þessum tónleikum; fjóra tvöfalda Bacardi í Kók, sígó og Ingvar vin minn. Auðvitað sá maður svo einhver smetti úr fortíðinni. Eitthvað sem maður hefði alveg þolað að sjá ekki í svona að minnsta kosti 100 ár til viðbótar. Annars bara fínt, frábært, stórkostlegt.
Skrifaði bíódóm um Sin City upp á 51 dálksentimeter. Hann mun ekki birtast í Fréttablaðinu. Þar verður boðið upp á stytta 29,1 dálksentimetra útgáfu en sú lengri skilar sér að sjálfsögðu hingað.
Það vantar eitthvað í War of the Worlds. Þegar maður gengur út finnst manni maður hafa verið svikinn um eitthvað, veit ekki alveg hvað. Rosaflott mynd samt. Þriggja stjörnu stykki. Spielberg getur samt betur en Tom Cruise hlýtur að hafa verið að gera sitt besta þar sem hann böggaði mig ekkert sérstaklega sem er býsna gott þar sem ég hatann og hef gert síðan ég sá hann í Risky Business. Skólabókardæmi um mann sem hefur náð allt, allt of langt.
Sin City er því tvímælalaust besta mynd sumarsins og fær 5 stjörnur og í þetta skipti eru það alvöru 5 stjörnur. Star Wars er alltaf með einnar stjörnu forgjöf hjá mér (can´t help it). En í þetta skipti meina ég það. Sin City er tótallý fokking brilljant, rétt eins og Duran Duran.
|
|
 |
 |
|
|
 |
Blóðbönd
First Aid
Mjölfiðlar
Elítan
Bloggar
shit and stuff
|
|