»  off record  »  Blood for blood and by the gallon
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Blood for blood and by the gallon
Föstudagur, 08. júlí 2005

Sin City er loksins komin í bíó. Ég ætla ekki að tjá mig frekar um þá mynd enda væri það eins og að flytja uglur til Aþenu eða bera vatn í bakkafullan læk. Þetta er tær snilld og ég þurfti að stytta lofsöng minn um hana í Fréttablaðinu verulega en friða samviskuna með því að birta DVD útgáfuna hér.

Fyrir aðdáendur góðra spennumynda, Mickey Rourke og film noir er Sin City sjónræn fullnæging og konfektkassi fyrir graða unglingspilta. Sá hana fyrst í Lúxus salnum í Smárabíói með nokkrum vel völdum nördum þann 1. apríl og aftur á forsýningu nokkrum vikum síðar. Hef samt beðið spenntur og fer á hana aftur um helgina.

Það eina sem mér finnst vanta í þessa mynd er samband Marvs við móður sína en eins og Rourke hefur bent á þurfti að stytta hans kafla til þess að koma hinum "tussunum" að. Marv og mamma verða samt örugglega í DVD útgáfunni en auk þess skilst mér að Rosario Dawson beri brjóstin á DVD disknum en þeir sem telja sig fá að sjá þær júllur í bíó verða sviknir.

Slengdi áhugasömum til hægðarauka í slatta af erlendum dómum inn undir liðnum "aðrir".
Persónulega er ég hrifnastur af hugmyndinni um að Sin City sé afkvæmi Daffy Duck og Raymonds Chandler.
Svo er það auðvitað mjög smart að eyrnamerkja Marv sem Terminator meets Beauty and the Beast.
Hér er svo dómsuppkvaðning vina okkar hjá EMPIRE.


| 13:35 |
komment

Þú gleymdir að birta dómsuppkvaðningu mína á myndinni.
Þó ég hafi fílað hana í tætlur og fundist hún verulega töff (tæknilega séð) mæli ég með því að allir sem fíla lumskt pedófílar myndir, þ.e. börn á nærfötum og feita karla með byssur og plástra, sjái Sin City. Hún er fróun staðalímyndanna.
Your fellow feminist

Nr. 1 | tómatsósan | 8.07.2005 | 17:43:41 | [+] |

Besta mynd ársins my ass. Besta mynd síðustu ára á frekar við í þessu tilviki. Alla vega með þeim bestu.

Nr. 2 | kkg | 11.07.2005 | 20:39:31 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff