»  off record  »  Eureka!
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Eureka!
Föstudagur, 22. júlí 2005

Ég er búinn að finna lausn á frjókornavandanum sem toppar öll lyf. Mér sárnaði samt svolítið þegar DV birti þessa mynd af mér og sagði að þessi ungi Star Wars nörd skyti Ewan McGregor skelk í bringu. Ég er gamall.

Annars sá ég McGregor í The Island í gær. Prýðileg popp&kók sumarræma. Michael Bay hatar það ekkert að velta bílum, sprengja hús og drepa fólk en hann gerir þetta allt með miklum bravúr í þessari mynd sem leynir á sér. Þrátt fyrir nafnið og að hún fjalli um klónun á hún samt lítið sameiginlegt með The Island of Dr. Moreau og er ekki drasl.

The Amityville Horror sleppur líka fyrir horn. Hún nýtur þess líka í stjörnugjöfinni að mér finnst hún miklu betri en frummyndin sem ég þoli ekki. Misminnti í gær og sagði hana gerða 1977 í Fréttablaðinu. Ég ætti eiginlega að reka mig. Þetta er jafn alvarlegt og "til læks". Skeikaði samt bara 2 árum. Hún er ´79 módel.

Hér eru gamlar hryllingspælingar úr bókmenntafræðinni. Draugahús og Uppvakningar.

Já. Polanski var að vinna dómsmál. Það er gott. Held alltaf með honum. Minnir að þessi grein mín um hann sé skemmtileg þó ég hafi ekki komið þeirri geggjuðu kenningu að að Manson morðin hafi verið framin til að refsa Polanski fyrir að láta erkifíflið Anton LaVey hjá Satanskirkjunni í Chicago leika Djöfullinn í Rosemary´s Baby. Andskotanum sjálfum og alvöru Satanistum fannst víst þessi djóker ekkert spes.

Djöfull verða þessar helvítis, andskotans færslur alltaf langar. Einfaldur minnismiði verður alltaf að einhverju andskotans stream of consciousness. Ég myndi ekki lesa þetta þó ég fengi borgað fyrir það. Fyrirsögnin sem vísar í Arkímedes kallar þannig til dæmis óhjákvæmilega fram mynd af stærðfræðingnum að teikna hringi í sandinn á strönd Sýrakúsu þar sem rómveski hermaðurinn kom að og drap hann. Ein sagan segir að síðustu orð Arkímedasar hafi verið "snertu ekki hringana mína" (á Latínu auðvitað). Þetta kallar svo fram í hugann lag með Belindu Carlisle:

Sundown all around
Walking thru the summer's end
Waves crash baby, don't look back
I won't walk away again

Oh, baby, anywhere you go,
We are bound together
I begin, baby, where you end
Some things are forever !

Circle in the sand
'Round and 'round
Never ending love is what we've found
And you complete the heart of me
Our love is all we need
Circle in the sand

Lagið vekur upp minningar um Madonnu sem fríkaði út í In Bed With Madonna af því að ein af bakraddasöngkonunum hennar sönglaði einmitt þetta lag. Madonna vekur svo upp minningar um Penthouse með henni á forsíðunni og allsberri, órakaðri undir höndunum, inni í blaðinu þannig að maður veit ekki af fyrr en maður er byrjaður að fróa sér sem vekur upp hugsanir um Guð og ferminguna og sektarkennd yfir því að maður sé að gera eitthvað ljótt sem aftur kveikir hugsanir um Reykjavíkurborg sem er ljót sem minnir mann á R-listann af því að það er honum að kenna og þá fær maður aftur móral nú yfir því að vera kannski orðinn sjálfstæðismaður sem vekur upp löngun til þess að skera af sér hægri höndina en þá er maður orðinn svangur og étur túnfisk upp úr dósinni sem minnir mann á hversu glataður maður er og þá kveikir maður á sjónvarpinu til þess að reyna að gleyma því og ..................


| 21:46 |
komment

hringdu í mig þegar svona stendur á... ekki blogga um það.. mér er alveg sama um sjálfsfróun og in bed with madonna en fokking kræst ekki ganga í sjálfstæðisflokkinn... og hvað þá skera af þér hægri höndina.

Nr. 1 | tómatsósan | 23.07.2005 | 0:25:35 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff