»  off record  »  From Hell
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
From Hell
Mánudagur, 18. júlí 2005

Það er bannað að fjalla um Málefnin.com hér á BadaBing! og ég hef aldrei lagst svo lágt áður að víkja einu einasta orði að því arma hyski sem skrifar þjóðarsálarþanka sína á vefinn.
Það hefur samt verið óvenju gaman að fylgjast með svaðilförum tveggja aðalvitleysinganna sem sprottið hafa upp úr þessari rotþró þvælast um á Press.is þar sem Jakob vinur minn endist ótrúlega við svara þeim Kela og Gmaríu sem er án efa vitlausasti Málverjinn og væri það jafnvel þótt Keli blandaði sér enn í umræðuna þar.

Fleiri snjallir pennar, PÁÁ og Friðrik Þór, hafa hætt sér út á sama forað og Jakob og sálgreint málverjaeðjóðin snaggaralega. En eins og heimskum hættir oft til þá svara málverjarnir allri gagnrýni á þann veg að blaðamennirnir séu hrokafullir og hræddir við málverjana sem eru í eigin huga orðnir fimmta valdið. My ass. Verð samt að minna Jakob minn á hið fornkveðna að það að rífast á internetinu er eins og að keppa á Ólympíuleikum fatlaðra, jafnvel þótt þú vinnir þá ertu þroskaheftur.
En ég finn mig semsagt tilneyddan til að ræða Málefnin.com hér í fyrsta sinn vegna þess að ég rambaði nýlega á viskukorn á þessum vef sem alla jafna er hafsjór af illa skrifaðri og enn verr hugsaðri meðalmennsku:

Annars er það nú með Framsókn að manni grunar að þeir líkt og rottur, kakkalakkar og Keith Richards munu lifa af kjarnorkustyrjöld.

Þetta segir einhver Calahan á Málefnunum og hlýtur hreinlega að vera skyldur Harry þetta hittir nefnilega beint í mark.

Ég drullaðist til að skrifa loks um Adventures in the Rifle Brigade. Skemmtilegt stöff.

Eins og aðrir með eitthvert vit í kollinum fíla ég Silvíu Nótt og verð því að benda á þetta.

Blandaði mér í andskotans Snoop vitleysuna í Stuðinu og ver að sjálfsögðu málfrelsið. Tókst líka að blanda Michel Houllebecq í þetta sem mér finnst helvíti gott enda hef ég ekki staðið mig sem skyldi í að halda snilli þessa fúla Frakka á lofti. Skrifaði einu sinni þessa líka þrælgóðu grein um Öreindirnar á Bókavefinn hans Hrafns á Strikinu. Krummi gaf mér bókina í jólagjöf en þetta er eina bókin sem ég hef lesið á undanförnum árum sem ég get hugsað mér að lesa aftur. Sin City bækurnar ekki meðtaldar, obviously!

Svo er ég byrjaður að skrifa aftur um sjónvarp. False move enda vart hægt að hugsa sér verra umfjöllunarefni auk þess sem mér hefur í gegnum tíðina þótt sjónvarpsrýnar frekar leiðinlegir.

Fleira var það ekki að sinni en ég vil eindregið hvetja þá sem mér er illa við til að éta skít.


| 12:55 |
komment

Það er hrein snild að fylgjast með þér toggi minn svo jákvæður og brosandi út í heimin (my ass) ;)

Nr. 1 | HH | 18.07.2005 | 23:06:16 | [+] |

Hvað meinarru, ertu að segja að ég sé ekki hress?

Toggi er dauður by the way, skildi hræið af honum eftir í ruslagámi við bensínstöð í Kópavogi fyrir all mörgum árum.

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 19.07.2005 | 0:44:52 | [+] |

Tóti minn. Það eru örugglega til enn meiri vitleysingar en ég og Gmaria þó ég ég segi sjálfur frá. Annars er ég að draga mig út úr umræðum á netinu, enda ekkert út úr því að hafa nema leiðindi og skítkast. Það verður að segjast þér til hróss að þú virðist vera að finna þig aftur í geðvonskunni sem þú ert kunnur fyrir og hættur þessu blómastráandi kjaftæði sem hefur einkennt þig síðustu mánuði og er það vel. Nú kannast ég við þann Tóta sem ég hef alltaf haft lúmskt gaman af.

Nr. 3 | Keli | 19.07.2005 | 14:02:47 | [+] |

Mín er ánægjan Keli minn og ég vona að geðvonskan sé komin til að vera svo ég valdi ekki þér og öðrum aðdáendum svona vonbrigðum aftur. Óska þér til hamingju með ákvörðun þina um að draga þig í hlé. Það skynsamlegasta sem þú hefur gert lengi enda deginum ljósara að þú ert löngu búinn að segja allt sem þú hefur að segja og dæma sjálfan þig úr leik en það gerðirðu í raun um leið og þú birtir fyrsta póstinn á Málefnunum en eins og alþjóð veit tjá sig engir þar nema bjánar.

Já blessaður vertu, það eru sko til meiri vitleysingar en þú en það er ekki fín latína að benda á eitthvað verra til þess að réttlæta arfann í eigin garði.

Nr. 4 | Tóti sjálfur | 19.07.2005 | 14:14:25 | [+] |

Satt best að segja þá hef ég alveg sama rétt á að tjá mig og aðrir og það er hvers og eins að dæma skrifin fyrir sína hönd. Margir eru þeir sem telja mig ágætis penna en geta gert betur. Til eru líka þeir sem finnst þú ömurlegur penni og ættir helst ekki að tjá þig en þeim er ég ósammála. Hins vegar fellur þú þá gryfju að telja að fólk geti ekki bætt sig, en það geta allir ef vilji er fyrir hendi.

Ég hef ákveðið að halda mínum vef gangandi, en breyta honum þannig að hann henti mér betur fyrir það sem ég hef að segja, og þá fer ég raunverulega að segja mínar skoðannir án þess að draga neitt undan eins og ég hef gert hingað til.

En ég hef ekki hugsað mér að níða skóinn stanslaust af fólki sem mér líkar ekki við eins og sumir ónefndir.

Nr. 5 | Keli | 19.07.2005 | 21:31:38 | [+] |

(eftir að hafa hrist úr mér aumingjahrollinn) get ég ekki sagt annað en þú ert óborganlegur. Alveg æði. Haltu áfram og ekki draga neitt undan. Þetta getur ekki annað en orðið betra.

Nr. 6 | Tóti sjálfur | 19.07.2005 | 21:35:41 | [+] |

Jú, jú, satt er það. Lengi getur gott bestnað.

Nr. 7 | Keli | 19.07.2005 | 22:55:57 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff