»  off record  »  Heimur versnandi fer
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Heimur versnandi fer
Mánudagur, 25. júlí 2005

Allar löggur í London eru komnar með 00- forskeytið fyrir framan kennitölur sínar og hafa nú leyfi til að drepa. Sandnegrar eru efstir á dauðalistanum en ég myndi ekki láta sjá mig á götum stórborgarinnar í kanaúlpunni minni með Jurassic Park III bakpokann minn. Fasistar hafa líka náð völdum í blokkinni minni og ætla að reka hana í anda sumarbúða Hitlersæskunnar.

Svartir hvolpar gelta að mér og glefsa í skálmarnar. Ég er því farinn að hlusta óhóflega á The Doors og Rammstein sem veit ekki á gott. Hef þurft að sækja styrk í trúna og er farinn að ganga aftur með gamla Þórslíkneskið um hálsinn. KR heldur áfram að tapa og þegar ég stóð frammi fyrir því að gera grein fyrir atkvæði mínu í næstu borgarstjórnarkosningum í Gallup símakönnun vissi ég ekki fyrr en ég hafði gefið Sjálfstæðisflokknum atkvæði mitt og sagt Vilhjálm Þ. líklegastan til að ná árangri í borginni. Það er af sem áður var en þetta er staðreynd. R-listinn verður að víkja með allt sitt spillta og valdagráðuga hyski. Vinstri menn hafa ekkert með völd að gera þó þeir séu ekki jafn ömurlegir og framsóknarmenn en það er ekkert nýtt í þessu og Orwell gerði þessu fullnægjandi skil í Animal Farm. Hann sá líka fyrir líf mitt í Nóatúninu í 1984.
Myrkraöflunum vex stöðugt ásmeginn á meðan ég og mínir erum á undanhaldi. Kaffi með byltingarforingja á eftir. Ég spái því að blóðið muni renna fljótlega. Þegar maður er innikróaður er ofbeldi eina lausnin.

Five to One Beibí


| 13:14 |
komment

No one here gets out alive ...

Nr. 1 | Jim Morrison | 26.07.2005 | 2:04:49 | [+] |

Eins og Palli vinur minn sagði - Fólk með iPod og bakpoka er í útrýmingarhættu í London.

Nr. 2 | Ingó | 26.07.2005 | 2:33:30 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff