»  off record  »  Herslumunurinn
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Herslumunurinn
Föstudagur, 01. júlí 2005

Tónleikarnir voru frábærir. Die Duranies eru ótrúlega seigir og í toppformi. Eiginlega alveg eins og þeir voru fyrir tuttugu árum en sjitt hvað mig langaði til að vera fullur þarna. Gat alveg dansað, klappað og sungið með en það var þrennt sem vantaði upp á til þess að ég næði að fá allt sem ég vildi út úr þessum tónleikum; fjóra tvöfalda Bacardi í Kók, sígó og Ingvar vin minn.

Auðvitað sá maður svo einhver smetti úr fortíðinni. Eitthvað sem maður hefði alveg þolað að sjá ekki í svona að minnsta kosti 100 ár til viðbótar. Annars bara fínt, frábært, stórkostlegt.

Skrifaði bíódóm um Sin City upp á 51 dálksentimeter. Hann mun ekki birtast í Fréttablaðinu. Þar verður boðið upp á stytta 29,1 dálksentimetra útgáfu en sú lengri skilar sér að sjálfsögðu hingað.
Það vantar eitthvað í War of the Worlds. Þegar maður gengur út finnst manni maður hafa verið svikinn um eitthvað, veit ekki alveg hvað. Rosaflott mynd samt. Þriggja stjörnu stykki. Spielberg getur samt betur en Tom Cruise hlýtur að hafa verið að gera sitt besta þar sem hann böggaði mig ekkert sérstaklega sem er býsna gott þar sem ég hatann og hef gert síðan ég sá hann í Risky Business. Skólabókardæmi um mann sem hefur náð allt, allt of langt.
Sin City er því tvímælalaust besta mynd sumarsins og fær 5 stjörnur og í þetta skipti eru það alvöru 5 stjörnur. Star Wars er alltaf með einnar stjörnu forgjöf hjá mér (can´t help it). En í þetta skipti meina ég það. Sin City er tótallý fokking brilljant, rétt eins og Duran Duran.


| 1:11 |
komment


Mislas, hélt að þú værir fallinn, fékk hland fyrir hjartað. Gott að þetta með vín í kók var djók!

Nr. 1 | Sumarfrís Mæja | 5.07.2005 | 10:17:07 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff