»  off record  »  Kaþarsis
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Kaþarsis
Föstudagur, 01. júlí 2005

corpse.gifAlveg er það með ólíkindum hversu hryllingsmyndagláp gerir mér gott andlega. Endurnærði mig í vikunni með House of 1000 Corpses eftir Rob Zombie. Þetta var nú meira fyndið en skerí en nóg af blóði og aflimunum samt. Hér er Texas Chainsaw stæld grimmt en húmorinn er miklu betri. Zombie er svo allur að verða meinstrím og við fáum væntanlega The Devil's Rejects í bíó enda er hún að raka saman dollurum.

Ég er enn að ná áttum eftir tilfinningauppnámið sem fylgdi Duran tónleikunum og eftir að hafa farið yfir málið með Hrafni er niðusraðan sú að ég hafi ekki þurft að vera fullur í gær heldur hafi tilfinningaleg bæling komið í veg fyrir að ég nyti tónleikanna í botn.

Extentend Night Version af tónleikagreininni.


| 17:56 |
komment

Ég fríkaði líka svoltið út á Queen+Paul Rodgers, var ekki alveg að meika þetta.

Nr. 1 | Óli Gneisti | 1.07.2005 | 18:14:54 | [+] |

ég var að senda þér smápistil sem ég ætlaði að biðja þig að líta á fyrir mig
en ég kann ekki að kommmentera á mannlífið enda fámennt hér í sveitasælunni

Nr. 2 | Geirlaugur | 2.07.2005 | 19:58:32 | [+] |

Sælir báðir heiðursmenn. Utanbæjarflakk mitt í sumar hefur kennt mér margt. Ekki síst það að fámennið í sveitasælunni er miklu betra en mannlífið í borginni. Best leið mér gsm sambandslaus á Breiðuvík. Á þjóðveginum í dag rifjaðist það svo upp fyrir mér undir Queen Greatest Hits að Queen er með meira testósterón en Duran Duran þó sveitin sé almennilegt hommaband.

Nr. 3 | Tóti sjálfur | 3.07.2005 | 22:14:00 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff