»  off record  »  Kennsl
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Kennsl
Miðvikudagur, 06. júlí 2005

Aristóteles segir: "Kennsl eru, eins og nafnið ber með sér, í því fólgin að vanþekking víki fyrir þekkingu, og af því spretti vinátta eða óvinátta hjá fólki, sem á gæfu eða ógæfu í vændum."

Þetta kemur fram í lykilriti Ara, Um skáldskaparlistina en kenningar Aristótelesar eru enn hryggsúlan í flestum Hollywwodkvikmyndum og í nafni meistarans lýsi ég því hér með yfir að flottustu kennslin í bíó í sumar eru í Batman Begins þegar Bruce Wayne gefur Rachel vísbendingu. Við vissum auðvitað öll að Anakin væri Vader þannig að Star Wars er ekki með.

It´s not who you are underneath. It´s what you do that defines you, eða með öðrum orðum: "Yes baby, I am the Batman".

Skemmtilegasta setning sem ég hef lengi séð í kvikmynd er hins vegar letruð á stuttermabol vonda trúðsins House of 1000 Corpses: If I´d want to listen to an asshole. I´d fart.

Á morgun eru 2 ár frá því að ég tékkaði mig inn á Teig þannig að í dag ætti að vera edrú dagur. Það voru óneitanlega kennsl þegar ég komst að því að ég væri alki og á þeirri studnu hvarflaði ekki að mér að ég ætti hamingju í vændum enda var FLÆKJUSTIG lífs míns frekar hátt en það gengur ágætlega að lækka það. Ég lærði þetta orð, "flækjustig", af Sveini Andra lögspekingi sem notaði það um mál skjólsæðings síns sem kann ekki að nota smokk og hefur því verið að greiða meðlag með barni sem hann á ekki í tíu ár. Verstur asskotinn nefnilega að móðirinn kunni ekki að telja og ruglaði bólfélagatali sínu og læknirinn sem gerði DNA prófið þekkir ekki litning frá rassgatinu á sér. Þetta er hátt flækjustig. Ég myndi ekki fara með mitt DNA til neins annars en Kára klára en ég myndi líka aldrei fá Svein Andra til að verja mig.

Flækjustig er álíka gott orð og gobbledygook og um það gilda sömi lögmál og hjá General Melchett I´m making a note of it because I intend to use it more in conversation.


| 20:48 |
komment

Skjólsæðingur er gott orð, mun betra en flækjustig. Ég nótera það hérmeð hjá mér og hyggst nota það í samræðum seinna meir.

Nr. 1 | Hr. Pez | 7.07.2005 | 8:17:07 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff