Föstudagur, 15. júlí 2005
Þessi löngu hlé á milli færslna hafa aldrei þessu vant neitt með bloggleti eða sumardoða að gera heldur skrifast þetta beint á Og Vodafone sem er átakanlega slappt fjarskiptafyrirtæki.
Ég hef svo sem alltaf verið meðvitaður um að Og Vodafone (áður Íslandssími) er vont fyrirtæki, smekkfullt af vanhæfu liði bæði í röðum stjórnenda og tæknimanna. Þetta breytti því ekki að ég hef skipt við fyrirtækið frá stofnun þar er eingöngu um prinsipp ákvörðun að ræða.
Síminn (áður Landssíminn) er skrímsli, ógeðslegt fyrirtæki, sem hélt Íslenskum símamarkaði í heljargreipum í 75 ár þannig að um leið og einokunin var rofin kom ekki annað til greina en að skipta við samkeppnisaðilann og sætta sig um leið við verri þjónustu.
Ég mun því halda mig við Og Vodafona þrátt fyrir að þar á bæ virðist vera skrúfað fyrir nettenginuna sem ég borga fyrir á slaginu 12 á miðnætti. En það er einmitt um það leyti sem ég hef tíma til að sinna Binginu. Og Vodafone hlýtur að reyna að halda netinu sínu uppi á næturnar svo maður þurfi ekki einu sinni að leiða hugann að því að færa sig yfir til ríkismonsters sem er á kafi í fjölmiðlarekstri og klámdreifingu.
| 9:37 |