Fimmtudagur, 21. júlí 2005
Það hefur rignt yfir mig kvörtunum yfir að ég sé búinn að skemma nýju Harry Potter bókina fyrir fjölda fólks. Þetta er rangt. Ég var einmitt að auðga hana og gera lesturinn skemmtilegri með því að ljúga því að Hermóína myndi drepast. Og það er ekki Hagrid sem missir lappirnar heldur Anakin en það er önnur saga.
Hermína er auðvitað búin að vinna immjúnití í þessum survivor leik sem Rowling býr til fyrir útkomu hverrar bókar þar sem hún mun enda með Draco (eins og ÁJ hefur reiknað út með hefðbundnum frásagnarformúlum).
Ég ætlaði nú samt fyrst að kjafta því hver dræpist en Ármann gerði það svo skemmtilega á bloggi bróður síns að hann stal glæpnum. Hefði maður ætlað að skvíla eftir það hefði maður endað í sporum Chuck Berry þegar hann gekk á svið á eftir Jerry Lee Lewis sem skildi píanóið eftir í björtu báli og sagði "toppaðu þetta niggari."
Þannig að ég endurtók í staðinn djókinn sem við Jakob lékum ítrekað á Kollu Bergþórs áður en hún náði að lesa Fönixregluna en við lákum því reglulega í hana að það væri "stelpan" sem dræpist. Við uppskárum alltaf mikil heróp og formælingar sem var ekki fair þar sem við vorum bara að auka lestrarnautnina hjá henni, hugsið ykkur bara léttinn þegar Hermíóna lifði og það var bara guðfaðirinn sem kyngdi hinum stóra, græna banana dauðans.
Annars skil ég ekki þessi læti. Það var búið að segja mér að það væri Gary Oldman sem dræpist í síðustu bók en ég skemmti mér ágætlega yfir henni. Ég er heldur ekki búinn að fá nýju bókina frá Amazon en lét strax segja mér hver dræpist núna. Sú vitneskja breytir engu. Öll heimsbyggðin sá Titanic í það minnsta í tvígang og grét, samt vissu allir að dallurinn myndi sökkva og sama er að segja um Star Wars. Það veit hver einasti kjaftur að Rasssakinn er Vader en samt missa nerdir þvag í bíó.
Það skiptir nefnilega ekki máli hvað gerist, heldur hvernig.
| 21:39 |