»  off record  »  Vanilla Sky
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Vanilla Sky
Þriðjudagur, 26. júlí 2005

Gremjan er farin, hatrið gufað upp og ég finn hvorki reiðina mína né vínlöngunina. Skrítið hvað það þarf lítið til að snúa öllu á hvolf. Ég er samt alltaf að komast betur og betur að því að það er tilgangslaust að ákveða að eitthvað eigi að vera svona eða hinsegin eða að maður geti kortlagt líf sitt langt fram í tímann. Það gerist alltaf eitthvað allt annað.

Ed Bunker er dauður. Ætli ég verði þá ekki að lesa ævisöguna hans sem ég keypti á 1000 kall í Kolaportinu. Hún er árituð en ég tek því með mátulegum fyrirvara að kallinn hafi sjálfur stýrt penna. Kolaportið er risastór lager af sviknum vörum. En mikið skelfing er ég alltaf svag fyrir utangarðsmönnum sem nota reynslu sína til að segja eitthvað og ná til fjöldans. Bunker og Ellroy eru ekta.

Hitti Jim Rose áðan og allt hans fríkaða gengi. Klámstjarnan Amber Pie fór úr að ofan og Jim að neðan. Saga að segja frá þessu.


| 11:47 |
komment

Kallgreyið, gæti allveg verið ekta, hann kom nú hingað um árið... Bunker er ekta en Ellroy eiginlega ekki....

Nr. 1 | Gunni | 26.07.2005 | 16:04:40 | [+] |

True. Það er full langt seilst með Ellroy en það er eitthvað töff við bækurnar hans. En ef út í það er farið þá eru auðvitað bestu hard boiled höfundarnri mjög óekta, drykkfelldar skrifstofublækur eins og Chandler. Það toppar hann enginn.

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 26.07.2005 | 16:58:14 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff