»  off record  »  Ísbjarnakjöt í átta daga
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Ísbjarnakjöt í átta daga
Þriðjudagur, 16. ágúst 2005

Það var rjómablíða í Kulusuk þegar föruneyti Hróksins lenti þar á miðvikudag en ætlunin var að sigla þaðan með bát til Tasiilaq þar sem Hrókurinn heldur skákveislu annað árið í röð.
Þrátt fyrir glampandi sól og lygnan sjó reyndist siglingaleiðin þó ófær vegna ísa þannig að þyrluferð varð ofan á. Ég var alveg búinn að gíra mig upp fyrir siglingu ekki síst þar sem hópurinn sem fór á undan okkur fékk að sigla með Sigurði Ísmanni sem Reynir Traustason hefur gert ódauðlegan; fyrst í bók sinni Seiður Grænlands og ekki síður í fréttum sínum af því þegar Ísmaðurinn ógurlegi fangaði hákarl og drap með berum höndum. Það þótti heimsfrétt.

Það er hins vegar eitthvað svo geggjað við að fljúga með þyrlu þannig að ég grét það þurrum tárum að fá ekki að sigla á milli ísjaka og horfast í augu við seli í sínu náttúrulega umhverfi. Ísmaðurinn tók svo á móti okkur á þyrluflugvellinum í Tasiilaq, vígreifur að vanda, nýkominn úr ævintýralegri veiðiferð sem ætti fullt erindi á Sky og CNN.
Ísmaðurinn fór, eins og svo oft áður, einn í þessa veiðiferð en þegar hann hafði fellt tvo birni missti hann skrúfuna undan bátnum og var strandaglópur í átta daga. Hann hafðist við á ísjaka og át kjötið af skepnunum sem hann hafði drepið. Hann gerði þó lítið úr þessum hrakningum enda er ísbjarnakjöt víst herramannsmatur þó það væri orðið "helvíti þreytandi áttunda daginn í röð". Siggi Ísmaður býr í Kuummiit sem er vægast sagt afskekkt pláss þar sem hvorki er rennandi vatn né rafmagn og fólk gengur örna sinna í fötur. Fjórir Hróksmenn þáðu heimboð Ísmannsins sem sigldi með þá áleiðis til Kuummiit um leið og það mynduðust glufur í íshrönglinu. Það er með ólíkindum að magnaðasti maðurinn á Grænlandi skuli vera Íslendingur.
Þetta er annað árið í röð sem ég geri mér upp forföll til þess að komast hjá heimsókn til Kuummiit. Þetta er auðvitað lygilegur roluskapur og ég veit að ég er að flýja undan ævintýri en ég treysti mér ekki enn til að fara fjær vestrænni siðmenningu en til Tasiilag. Þar er þó í það minnsta kaupfélag þar sem hægt er að kaupa egg, beikon og haglabyssur.


| 13:16 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff