»  off record  »  Misþroski
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Misþroski
Miðvikudagur, 24. ágúst 2005

Ég er í þunglyndi og þar sem mér er meinað að leita huggunnar í brennivíni hef ég ekkert nema myndasögur til þess að styrkja andann. Fór því upp í rúm með þriðja bindi af Daredevil sögum Franks Miller eftir kvöldfréttir í gær. Sambýliskonan mín (þessi sæta á forsíðu Allt í Fréttablaðinu í dag) sagði þegar hún lagðist við hliðina á mér löngu síðar að ég væri "svo skemmtilega misþroska" með þessar teiknimyndasögur mínar. Mér sárnaði þetta óskaplega og súnkaði dýpra í þunglyndið akkúrat þegar The Hand var að reisa Elektru upp frá dauðum.

Góðar myndasögur eru bókmenntir og margar hverjar miklu betri en innbundinn prósi einhverra lúsera sem þykjast hafa eitthvað fram að færa þannig að ég er ekki tilbúinn til að viðurkenna að áhugi minn á þeim sé vitnsiburður um misþroska. Þræti samt ekki fyrir það að í hjarta mínu er ég alltaf átta ára Star Wars nörd - og kæri mig ekki um að vera annað.
Það vill annars svo skemmtilega til að ef vel er rýnt í myndina af Þóru í Fréttablaðinu í dag sést vel hversu menningarlegur og vel lesinn ég er.
Það er nefnilega bókakosturinn minnn sem er í bakgrunninum. Þarna má sjá kjölinn á ævisögu Byrons ásamt þynnri bók með völdum bréfum skáldsins. Þarna eru líka tvær bækur eftir Baktín en Rabelais and his World er mér sérstaklega kær. Biblían mín, The Best of Raymond Chandler, er á sínum stað en hana ef ég ekki skilið við frá því ég var 14 ára og í sömu hillu eru Red Harvest og The Maltese Falcon eftir Hammett, smásögur Chandlers og Falling Angel eftir Hjortsberg; bráðskemmtileg noir/horror saga sem Angel Heart byggir á. Tók mig mörg ár að komast yfir hana. Ævisaga Jennu Jameson, How to make Love like a Porn Star er vel geymd í hillunni ásamt ævisögu Byrons eftir André Maurois í þýðingu Sigurðar Einarssonar langafa. Sókn og Sigrar, þríleikur afa um Framsóknarflokkinn, er einnig í öndvegi en það er ekki gott að segja hvað saga Framsóknarflokkins á síðustu árum gæti heitað. Orðin sókn og sigrar ættu þó varla við.
Ég held mikið upp á Helgu Kress , sem fræðikonu, þannig að bækur hennar Fyrir dyrum fóstru og Máttugar meyjar eru alltaf innan seilingar sem og ævisaga Lauren Bacall, By Myself. Þarna eru líka þrjár James Bond bækur í íslenskum þýðingum, óborganlegar bækur þar sem orðið "kynvillingur" kemur fyrir eins og ekkert sé sjálfsagðara. Myndasögurnar eru í efstu hillunni og því ekki í mynd en það glittir þó í ritsafn Þórbergs Þórðarsonar (sem er betri en Laxness) og kviður Hómers sem eru auðvitað skyldueign.

Farangurinn minn frá Grænlandi er nú á Egilsstöðum, skilst mér. Þetta er nokkuð bagalegt þar sem í þessari einu tösku eru öll fötin mín. Ég legg nefnilega ekkert upp úr fötum, þeim mun meira úr bókum, og fataskápurinn minn, með sokkum og nærbuxum, rúmast í einni íþróttatösku. Ég er sem sagt enn í illa lyktandi lörfunum sem ég sigldi í frá Tasiilaq fyrir rúmri viku. Annars er gaman að segja frá því að taskan er ekki merkt og þar sem hún lagði af stað til Íslands tveimur dögum á eftir mér sá Guttesen, framkvæmdastjóri Hróksins, ástæðu til að opna hana á flugvellinum í Kúlúsúkk og kallaði svo yfir allan salinn: "Hver á svartan leðurjakka og Spider-Man bók?" Allir viðstaddir svöruðu einum rómi og datt aðeins einn maður í hug. En bara svona for the record þá var þetta ekki Spider-Man bók heldur Essential Punisher Vol. 1 en Spider-Man er framan á kápunni enda kom The Punisher fyrst fram sem aukapersóna í Spider-Man blöðunum.


| 15:22 |
komment

HAHAHAHAHA!
Ég hló upphátt.
Ég er einn.

Nr. 1 | Ingó | 25.08.2005 | 0:55:09 | [+] |

Kíktu á þetta

http://www.seanbaby.com/stupid/comicads02.shtml

Hammet hlýtur að hafa verið mjög þyrstur þegar hann gaf leyfi fyrir þessum brjáluðu auglýsingum. Furðulegt stöff.

Nr. 2 | gunni | 25.08.2005 | 9:06:38 | [+] |

Ingó minn: Maðurinn er alltaf einn og fljótt fljótt sagði fuglinn.

Þessi Sam Spade strípa er mjög áhugaverð en samt vildi ég óska þess að hana hefði aldrei borið fyrir augu mín. Ég skil hins vegar Dashiell vel og fyllibytta sem lítilsvirðir verk sín fyrir brennivín getur aldrei verið sell out. Svo mikið veit ég og lærði á drykkjuferli mínum.

Nr. 3 | Tóti sjálfur | 25.08.2005 | 11:28:31 | [+] |

Sambýliskona þín er líka misþroska, þessvegna eigið þið svo vel saman. Lestu netfangið og vefslóðina mína, vandaði mig mjög við að vera fyndin!

Nr. 4 | Trippi | 27.08.2005 | 18:33:04 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff