»  off record  »  Rambó hringir alltaf tvisvar
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Rambó hringir alltaf tvisvar
Þriðjudagur, 09. ágúst 2005

... og það gerir pósturinn sem betur fer líka því annars hefði ég misst af honum og þurft að sækja Rambo - Ultimate Edition DVD pakkann minn upp á pósthús. Nú er fyrsta Rambó myndin, First Blood, helvíti góð og þeir sem fordæma hana gera það blindaðir af Stallone fyrirlitningu og kaldastríðsfíling framhaldsmyndanna.
Ég horfi alltaf á First Blood með nokkurra ára millibili og hún hefur ekki klikkað enn. Þetta var nottla geggjuð hasarmynd þegar maður sá hana í Regnboganum á sínum tíma og stríð Rambós gegn skerfaranum í Jerkwater USA þykir svo sem ekki merkilegt á hasarmælikvarðanum í dag. En þetta er töff.

Rambó drapst vitaskuld í skáldsögu Davids Morrell þó hann hafi öðlast framhaldslíf í bíómyndunum og handritum Stallones og félaga. Það er Trautman sjálfur sem skýtur hausinn af Rambó í bókinni en í alternete endinum á nýja DVD disknum notar Rambó Trautman til þess að fremja sjálfsmorð

You trained me
you made me
you do it
you kill me


| 18:20 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff