»  off record  »  Selsjógúrt og fjöltefli í rigningu
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Selsjógúrt og fjöltefli í rigningu
Þriðjudagur, 16. ágúst 2005

Skákmeistararnir Henrik Danielsen og Otto Nakapunda frá Namibíu komu aftur til Tasiilaq í gær eftir rúmlega sólarhrings ferð með Ísmanninum Sigurði Péturssyni til Kuummiit.
Þangað fóru þeir til að gleðja krakkana í Kuummiit með skákkennslu og nammigjöfum. Heimamenn tóku þeim fagnandi og þeir nutu gestrisni Ísmannsins, sem gaf þeim ísbjarnarkjöt að borða. Þeim stóð einnig til boða að fá sér væna lúku af úldnum sel sem hefur verið að rotna í forstofunni heima hjá Sigurði í tvo mánuði, en þar drógu þeir mörkin.

Úldinn selur þykir þó engu að síður hið mesta lostæti í Kuummiit þar sem hann er látinn mygla í mauk svo það má éta hann eins og jógúrt. Á bakaleiðinni reyndi Ísmaðurinn að kenna gestunum að veiða að hætti heimamanna en skákmennirnir hittu hins vegar ekkert sem þeir miðuðu á, hvorki seli né kaffidósir, en ljúfmennið Danielsen viðurkenndi þó að hann hefði fundið villidýrið blossa upp í sér þegar hann var kominn með riffil í hönd og bráðina í sigtið.
Siglingin til baka tók hetjurnar fimm klukkustundir í gegnum þoku og ís. Þeir segja að ferðin hafi verið það magnaðasta sem þeir hafa upplifað en mér nægir tilhugsunin um úldna selinn og lyktina af honum í forstofunni til að sætta mig við að hafa orðið eftir í Tasiilaq.
Ég mun þó gæða mér á ísbjarnarkjötinu sem Siggi kom með færandi hendi í plastpoka eftir að hann hefur eldað það ofan í okkur eftir kúnstarinnar reglum. Dýrið felldi hann fyrir nokkrum dögum þannig að rotnunin er lítil sem engin. Skáktrúboðið hélt áfram í Tasiilaq á meðan Henrik og Otto sigldu á vit ævintýranna og það er óhætt að segja að föruneyti Hróksins hafi slegið í gegn hjá krökkunum í Tasiilaq, sem hópast í samkomuhúsið til að tefla og áhuginn er slíkur að um 20 börn tefldu fjöltefli við Róbert Harðarson, varaforseta Hróksins, undir berum himni í hellirigningu.


| 13:20 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff