»  off record  »  Sorgleg örlög kátra krakka
nýlegt off record

nýleg komment

a long time ago...
Sorgleg örlög kátra krakka
Þriðjudagur, 16. ágúst 2005

Sjálfsmorð ungs fólks eru líklega hvergi fleiri en á Grænlandi. Tölurnar sem ég hef heyrt hér eru sláandi en á þriggja mánaða tímabili í fyrra styttu níu ungmenni í Tasiilaq sér aldur.
Þegar ég reyndi að ræða þessi mál við starfsfólk barnaskólans í fyrra var fátt um svör. “Við tölum ekki um þetta. Viljum það ekki,” sagði fullorðna fólkið og þar við sat.

Afstaðan virðist þó hafa breyst til hins betra eftir þessa skelfilegu þriggja mánaða hrinu og öflugu forvarnarstarfi hefur verið hleypt af stokkunum. Forvarnarstarfið beinist fyrst og fremst að sjálfsmorðunum en aukinn kraftur hefur einnig verið settur í áfengisforvarnir en eins og alþjóð veit er áfengisvandinn á Grænlandi yfirgengilegur. Það er fátt í fari litlu krakkanna í Tasiilaq sem bendir til þess að fjöldi þeirra muni kjósa dauðann á unglingsárunum. Gleðin skín úr hverju andliti og það ber ekki á öðru en að lífið sé leikur í þessu náttúrutengda og frumstæða samfélagi.
Það þarf þó ekki að grafa djúpt til að finna skýringar. Hér er félagslega meðvitað fólk sem fullyrðir að um helmingur allra barna í Tasiilaq sé misnotaður kynferðislega og sifjaspell sé nánast almennt. Ástandið er svo ömurlegt að það þykir bót í máli að skömmin sem við vitum að nagar fórnarlömb slíks ofbeldis er minni hér vegna þess að svo mörg börn séu saman á þessum hræðilega báti.
Barnaheimilið hér er opið um helgar og ungabörn eru oft vistuð þar frá föstudegi til mánudags til þess að hlífa þeim við drykkjunni og ofbeldinu á heimafyrir. Unglingarnir sem ég hef rætt við í bænum eiga allir þann draum heitastan að komast burt sem fyrst. Burt frá alkóhólismanum og fábreytileikanum. Stelpurnar fullorðnast hratt og eru uppteknar af því að vera sætar. Strákarnir tala digurbarkalega; hafa erft hörkuna frá feðrum sínum en dreymir um að knattspyrnukunnátta verði þeirra farmiði burt. Fyrirheitnu löndin eru til dæmis Danmörk, Færeyjar og Ísland en tækifærin eru fá og flóttaleiðirnar þröngar.
Mig langaði til þess að taka þau öll með mér heim.


| 13:24 |
komment

Djöfuls kelling ertu að verða maður!! ( Litlu börnin bla bla bla), Hvar er að gerast með þig Toggi? Þú ert vonandi ekki grenjandi í pontuni á fundunum líka er það? ;o)
Kv óli...

Nr. 1 | óli | 22.08.2005 | 10:46:44 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?















Tell me, yes or no.







First Aid

Mjölfiðlar

Bloggar

shit and stuff