Miðvikudagur, 07. september 2005
Það hefur sjálfsagt enginn glaðst jafn innilega í hjarta sínu yfir endurkomu Mickey Rourke í Sin City og ég. Sennilega ekki einu sinni hann sjálfur.
Það hefur sjálfsagt enginn glaðst jafn innilega í hjarta sínu yfir endurkomu Mickey Rourke í Sin City og ég. Sennilega ekki einu sinni hann sjálfur.
Ég hef verið jafn trúr þessum eðalleikara og sumir eru loyal Dolph Lundgren í 20 ár og alltaf alið þá von í brjósti að hann myndi vinna sig út úr geðveikinni, neyslunni og aumingjaskapnum og byrja að leika aftur. Þetta gerðist í Sin City og Rourke fór aftur að fá peninga og komst í sviðsljósið á ný. Hann kom einlægur fram í viðtölum og talaði af reynslu fíkilsins sem hefur reynt allt sem ekki má og hefur fengið nóg. Hann var þakklátur fyrir að fá að komast aftur inn í leikinn og að mega vera í Cannes. Auðmýktin var umtalsverð en það glitti samt enn í gamla hrokatöffarann sem ég féll fyrir í upphafi og það sem verra var að þar sem ég hef stúderað manninn í tvo áratugi og lesið ótal viðtöl við hann las ég milli línanna að það væri stutt í fallið.
Þetta skrifaði ég í maí:
Ég man ekki eftir öðrum í bili en Sin City hasarinn byrjaði ekki fyrr en á miðvikudeginum sem ég yfirgaf svæðið en brottförin kostaði mig einkaviðtal við Mickey Rourke. Er samt sáttur þar sem ég er enn fullviss um að mér sé ekki hollt að horfast í augu við goðið. Tilsvör hans í viðtölum, t.d, við Verdens Gang sem hljóp í skarðið fyrir mig, benda til þess að hann sé á beinu brautinni en ég þekki minn mann og hef heyrt þetta áður. Hann verður búinn að fokka öllu upp og kominn aftur í ræsið eftir 1-2 ár.
Ekkert fellir hins vegar fíkilinn hraðar en velgengnin og nú síðast greinir DV frá því í dag að Rourke hafi tekið sér hlé frá öfgakenndri vodkadrykkju til þess að dúndra aðdáanda í gólfið og brjóta fyrir honum myndavél. Þá hafa áður birst gamalkunnar fréttir af sukki og kvennafari kappans í London á síðustu vikum. Með heppni nær hann að leika Marv í einni Sin City mynd til viðbótar og svo er þetta búið. Aftur.
Eða eins og De Niro sagði við Rourke í Angel Heart: Alas! How terrible is the wisdom when it brings no profit to the wise. Og þetta er ef ég man rétt tilfærsla úr grískum harmleik sem gerir þetta enn gildishlaðnara í ljósi þróunarinnar.
| 14:01 |