Miðvikudagur, 07. september 2005
Var að heyra það að Davíð Oddsson forsætisráðherra (þeir sem halda að Halldór Ásgrímsson gegni því embætti eru veruleikafirrtir og því að öllum líkindum framsóknarmenn) sé að hætta og ætli að hafa það náðugt í Seðlabankanum.
Þetta er gott hjá Dabba og örugglega löngu tímabært og ég verð að segja það eins og er að ég hef ekkert skilið í honum að vera að standa í þessu fánýta ati eftir að hann missti heilsuna.
Ég hef sjaldan verið sammála Doddssyni enda sjálfskipaður andstæðingur hans þar sem ég fæ greitt fyrir að skrifa í "Baugsmiðil" sem er "troðið" inn um bréfalúgur þegna Davíðs á hverjum degi. Ég mun samt sakna þessa magnaðasta stjórnmálamanns seinni hluta síðustu aldar á Íslandi og hlýt að harma það þegar töffurum í íslenskri pólitík fækkar. Nóg er eftir af helvítis sjarmalausu, húmorssnauðu lyddunum og geðleysunum.
Davíð er týpa. Það verður aldrei af honum tekið.
Bermúdaskál í boðinu!
| 15:57 |