Fimmtudagur, 11. maí 2006
Þetta langa blogghlé sannfærði mig endalega um að blogg er bjánaleg iðja og þess vegna er um að gera að byrja aftur. Það stóð nú svo sem aldrei til að loka sjoppunni endanlega en það var ekki um annað að ræða en taka síðuna niður í haust enda ætti fólk sem er ekki í andlegu jafnvægi ekki að blogga (ekki það að ég sé í lagi eða verði það nokkurn tíma) eða tjá sig yfirleitt á opinberum vettvangi.
Annars eru þetta búnir að vera helvíti hressir mánuðir. Að minnsta kosti þrír þeirra eru týndir í blakkáti en ég er viss um að þessi lengsti samfelldi drykkjutúr minn hafi verið sá allra viðburðaríkasti og skemmtilegasti hingað til. Lágpunktur þessa tímabils er svo tvímælalaust átta daga dvöl mín á Vogi (slapp út tveimur dögum fyrr vegna góðrar hegðunnar og vegna þess að ég þurfti ekki libríum þegar ég kom inn).
Auðvitað er alltaf hægt að finna margt spaugilegt við meðferðir en ó boj hvað næturnar á Vogi eru langar. Mætti í strik.is sloppnum mínum og meðferðarfélagar mínir voru alveg að fíla það að ég skyldi koma þangað andlega gjaldþrota í slopp frá gjaldþrota netfyrirtæki. Kænda kjút if jú þínk abátit. Það sem er samt verst við þessi meðferðarprógrömm er að þau miða öll að því að taka úr manni hrokann og þegar hann er tekinn úr mönnum eins og mér er ekkert eftir. So I´m back in black. Hefði Jakob félagi minn skrifað fyrirsögnina væri hún eflaust HE´S BACK AND HE´S ANGRY og ekki fer sá ágæti maður með fleipur.
Anyhu. Þegar vefstjórinn minn og fyrrverandi eiginkona tók síðuna niður í krísunni ógurlegu hrundi hún og það þurfti að byggja upp frá grunni. Fyrrverandi eiginmenn eru líklega sjaldan ofarlega á forgangslistanum en þegar Anna dreif loksins í þessu hristi hún þessa snilld fram á nó tæm. Hún er auðvitað drulluflínkur hönnuður en ég er á því að hún hafi outdone herself eina ferðina enn. Fyrir utan það að þetta noir look er það sem við höfðum upphaflega í huga fyrir BadaBing! Þá þurfti líka að finna nýjan hýsingaraðila og það varð úr að gæjarnir í Toppnet tóku mig að sér.
Hér&Nú greindi frá endurkomunni í gær og þó Mýrdal og Breki séu vænstu drengir virðist þeim fyrirmunað að skrifa um mig án þess að lauma inn eins og einni staðreyndarvillu. Óþarfi að rekja eldri dæmi enda er mér slétt sama um þau en móðgaðist aðeins þegar ég sá að ég væri byrjaður að blogga aftur á badabing.blogspot.com. Ég myndi aldrei leggjast svo lágt að halda úti bloggi á viðbjóðslega ljótum ókeypis síðum úti í heimi. Ekki að ræða það. Geti maður ekki gert hlutina með stæl er best að sleppa þeim.
| 21:11 |