Föstudagur, 19. maí 2006
Menntaskólafranskan er nú ekki að skila miklu hérna. Get pantað skammlaust á barnum og that´s about it. Þegar ég er einnan um fulla Þjóðvera kemur dvölin í MR sér alltaf vel og ég get slegið um mig með því að þylja upp Lorelei og fleiri ljóð. Þá verða þeir þýsku stundum meyrir og splæsa í glas. Ég kann bara tvo franska frasa. Annar er voulez-vous coucher avec moi ce soir? úr snilldarlaginu Lady Marmalade (svakalega á ég annars góðar minningar tengdar því lagi en það er bara milli mín og hennar). Hef ekki notað hann hér og mun ekki gera. Hinn er svo úr Le Petit Prince, sem er eina franska bókmenntaverkið sem ég hef barist í gegnum fyrir utan Le Petit Nicolas. Þennan frasa er ég búinn að nota óspart en enn hefur enginn teiknað fyrir mig kind.
Við Alfred Molina hengsluðumst í takt um götur Cannes í dag. Ber of mikla virðingu fyrir honum sem leikara til þess að bögga hann og sleppti því að ræða um moutons við hann. Hann er svo magnaður leikari að ég hugsa að ég hefði ekki einu sinni gólað "loved you in Spiderman 2" þó ég hefði verið draugfullur.
Það var ekki hjá því komist að slátra The Da Vinci Code í Fréttablaðinu í dag. Sorry guys en þetta er bara vond mynd.